Fjórir bandarískir hermenn drepnir 23. ágúst 2010 04:00 Hermanni bandaríkjahers hjálpað inn í sjúkraþyrlu í Zhari héraði í Kandahar í Afganistan á föstudag. Fréttablaðið/AP
Fjórir bandarískir hermenn féllu í austur- og suðurhluta Afganistan í gær, að sögn NATO. Þrír þeirra létust í átökum við uppreisnar-menn en einn lést þegar hann varð fyrir heimagerðri sprengju. Þá varð fyrrum skæruliðaleiðtoginn Slaam Pahlawan fyrir bílsprengju í Faryab-héraði í norðurhluta landsins. Pahlawan var í bíl ásamt sonum sínum, fimm og tíu ára, og tveimur lífvörðum þegar uppreinsnarmenn sprengdu bíl þeirra í loft upp með fjarstýrðri sprengju. Hann barðist við sovéskan innrásarher á níunda áratugnum en margir eftirlifandi hermenn frá þeim tíma hafa verið skotmörk talibana vegna samvinnu þeirra og ríkistjórnarinnar í Kabul. Það sem af er þessum mánuði hafa 42 hermenn verið drepnir í Afganistan, en þar af eru 28 bandarískir hermenn. Sextíu og sex bandarískir hermenn létu lífið í júlí en þeir hafa ekki verið fleiri frá því ráðist var inn í landið árið 2001. Nákvæm staðsetning átakanna í gær er ekki ljós en þó hafa borist fréttir af hörðum átökum í Jaji-umdæmi í austurhluta Paktiya-héraðs, um 12 kílómetra frá landamærum Pakistan. Afganski herinn og landamæralögreglan komu bandarískum hermönnum til aðstoðar á jörðu niðri og þyrlur gerðu árás úr lofti, að sögn afganska hersins. Ekki er vitað hve margir vígamenn féllu. -ve
Mest lesið Drápu tvo blaðamenn og tvo tökumenn vísvitandi Erlent Sæti Artúrs logar Erlent Meira að segja happ þegar frystihúsið brann Innlent Heimila sölu gervigreindar örflaga til Kína gegn hluta af ágóðanum Erlent 27 daga frostlausum kafla lokið Veður Tveir leigubílstjórar sviptir ökuréttindum við Keflavíkurflugvöll Innlent Nýtt skilti komið upp og rauða ljósið mun loga oftar Innlent „Eins og það væri verið að segja mér að ég ætti tvo mánuði eftir ólifað“ Innlent Tíu metra djúp hola í ísnum á vinsælli gönguleið Innlent Eyðilegging eftir skjálfta í Tyrklandi Erlent Fleiri fréttir Heimila sölu gervigreindar örflaga til Kína gegn hluta af ágóðanum Eyðilegging eftir skjálfta í Tyrklandi Ástralir hyggjast viðurkenna sjálfstæða Palestínu Drápu tvo blaðamenn og tvo tökumenn vísvitandi Sæti Artúrs logar Fundur Selenskí, Pútíns og Trump á næsta leiti Stór skjálfti reið yfir í Tyrklandi Furðar sig á viðvaningshætti í Washington og segir fundinn óþarfan Fjórir karlmenn stálu Labubu í tugatali Sjaldan fleiri mótmælt ríkisstjórninni Íhugar að bjóða Selenskí eftir allt saman Úkraína og Evrópa óttast meðvirkni Trump Bjartsýn á að Trump nái árangri með Pútín Eiganda Trump Burger verður sparkað úr landi Mexíkó hafnar aftur hermönnum Trumps „Úkraínumenn þurfa örugglega að gefa eftir land“ Skotárás á Times Square Nyrsta olíuvinnslusvæði Noregs formlega opnað Eldur kviknaði í sögufrægri dómkirkju Gefur ekkert landsvæði eftir Aserar og Armenar skrefi nær friði eftir sögulegan fund í Hvíta húsinu Geimfari Apollo 13 látinn Trump og Pútín funda í Alaska næsta föstudag Rekinn eftir tvo mánuði hjá skattinum og samdægurs tilnefndur sendiherra á Íslandi Ákvörðun öryggisráðsins til marks um enn frekari stigmögnun Skipar hernum í hart við glæpasamtök Stefni á tilraun með kjarnorkuknúna eldflaug á norðurslóðum Fann hagtölur sem honum líkar og hélt óvæntan blaðamannafund Skýrasta myndin af halastjörnunni, eða vopninu, hingað til Sakaði „sveppamorðingjann“ um að hafa eitrað fyrir sér í þrígang Sjá meira