Innlent

Þefuðu uppi kannabisræktun

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í húsi í miðborginni í nótt.

Við húsleit á áðurnefndum stað fundust nokkrir tugir kannabisplantna á ýmsum stigum ræktunar.

Tildrög málsins voru þau að lögreglumenn sem voru við eftirlit í hverfinu runnu nánast á lyktina af kannabisplöntunum og því var eftirleikurinn auðveldur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×