Ráðuneytið úrskurðaði ekki í samræmi við lög 2. febrúar 2010 05:00 Eigandi heilsulindarinnar óskaði eftir sérhæfðum nuddara sem átti meðal annars að vera útskrifaður úr virtum taílenskum nuddskóla. nordicphotos/getty images
Félagsmálaráðuneytið úrskurðaði ekki í samræmi við lög þegar það synjaði eiganda heilsulindar um atvinnuleyfi fyrir sérhæfðan nuddara sem hann hafði auglýst eftir á taílenska heilsulind, samkvæmt úrskurði umboðsmanns Alþingis. Forsaga málsins er sú að eigandi nuddstofunnar auglýsti eftir starfsmanninum á heilsulind en gerði meðal annars kröfur um að starfsmaðurinn skyldi vera útskrifaður úr virtum taílenskum nuddskóla, kynni skil á taílenskum spa-hefðum og menningu, að hann kynni taílensku og gæti haft „snurðulaus samskipti við eiganda og hugmyndafræðing heilsulindarinnar“. Kröfurnar sem gerðar voru áttu við eiginkonu eiganda nuddstofunnar. Félagsmálaráðuneytið taldi að eigandinn hefði í starfsauglýsingunni gert óraunhæfar kröfur til þess sem ráðinn yrði í starfið og synjaði nuddaranum atvinnuleyfi á grundvelli þess að fólk á Evrópska efnahagssvæðinu hefði forgang að vinnu hér á landi. Ráðuneytið tók þar með undir úrskurð Vinnumálastofnunar sem taldi að „umrætt starf krefjist hvorki slíkrar sérþekkingar né að fullreynt sé að finna fólk til starfans á Evrópska efnahagssvæðinu“. Umboðsmaður telur með áliti sínu að úrskurður ráðuneytisins hafi ekki verið reistur á réttum lagagrundvelli og að ráðuneytið hafi ekki rökstutt mál sitt nógu vel. Úrskurðurinn hafi því ekki verið í samræmi við lög. Hann beinir þeim tilmælum til félagsmálaráðuneytisins að það taki málið til nýrrar meðferðar komi fram ósk þess efnis. - kh
Mest lesið Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Innlent „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ Innlent „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Innlent „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Innlent Eldur í Bryggjuhverfi Innlent Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Innlent Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Innlent Lést er hún fagnaði sigri Frakka Erlent Óttast að færri leiti sér aðstoðar Innlent Fleiri fréttir Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ „Við skulum ekki láta grípa okkur með buxurnar á hælunum þetta árið“ Ungir síbrotamenn, eldur í Bryggjuhverfinu og andstæður í veðrinu „Við skírðum hana Halla Sykurvatn Tómatsósudóttir“ Eldur í Bryggjuhverfi Jarðböðin við Mývatn opin á nýjan leik „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Vegagerðin varar við vindi Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Sjá meira