Lífið

Mætt til Ástralíu með kókdósir í hárinu

Glæsileg Gaga.
Glæsileg Gaga.

Tískugoðið og poppsöngkonan Lady Gaga tókst að vekja athygli heimspressunnar enn á ný með sérkennilegum fatastíl. Hún lenti í Ástralíu í dag en þar mun hún spila á tónleikum sem eru hluti af tónleikaferðinni hennar sem kallast Monsters Ball.

Lady Gaga notaði sem sagt Diet-kók dósir í hárið líkt og gamlar og fínar frýr nota rúllur í hárið.

Uppátækið er svo sem hófstillt miðað við margt sem þessi líflega poppsöngkona hefur gert hingað til.

Á dögunum var frumsýnt umdeilt myndband með henni sem sýndi hana nakta. Söguagnir voru uppi um það að sjónvarpsstöðin MTV ætlaði ekki að sýna það vegna ofbeldis og nektar. Forsvarsmenn MTV hafa hinsvegar hafnað þessu opinberlega.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.