Vísað til þjóðarinnar Óli Kristján Ármannsson skrifar 6. janúar 2010 06:00 Blaðamannafundur á Bessastöðum Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, sagði þjóðina þurfa að fá ráðrúm til að meta yfirlýsingu þá sem hann kynnti í gærmorgun, en svaraði engu síður nokkrum spurningum fjölmiðla. Fréttablaðið/Stefán
Lögum frá í desember um ríkisábyrgð vegna Icesave-samninga við Breta og Hollendinga var vísað til þjóðarinnar með ákvörðun Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands, í gærmorgun um að skrifa ekki undir lögin. Á blaðamannafundi á Bessastöðum þar sem forsetinn kynnti ákvörðun sína vísaði hann til þess að honum hafi borist áskoranir frá um fjórðungi kosningabærra manna í landinu um að vísa lögunum í þjóðaratkvæðagreiðslu. „Það er mun hærra hlutfall en tilgreint hefur verið sem viðmið í yfirlýsingum og tillögum stjórnmálaflokka,“ sagði Ólafur Ragnar. Samkvæmt frumvarpi um breytingu á stjórnarskránni sem var lagt fram á þingi síðastliðinn vetur var kveðið á um að 15 prósent kosningabærra manna gætu knúið fram bindandi þjóðaratkvæðagreiðslu, þar voru þó undanskildir milliríkjasamningar. Ólafur Ragnar kvað skoðanakannanir jafnframt benda til að yfirgnæfandi meirihluti þjóðarinnar væri sama sinnis. „Þá sýna yfirlýsingar á Alþingi og áskoranir sem forseta hafa borist frá einstökum þingmönnum að vilji meirihluta alþingismanna er að slík þjóðaratkvæðagreiðsla fari fram.“Ragnhildur Helgadóttir Ragnhildur Helgadóttir, prófessor við lagadeild Háskólans í Reykjavík, segir stjórnarskrána í raun ekki gera kröfu um að forsetinn rökstyðji ákvörðun sína, mat á því hvort málum sé skotið til þjóðarinnar liggi í valdi hans. „Það er ekki gerð krafa um annað, hvað þá einhvern ákveðinn fjölda manna,“ segir hún, en kveðst hafa staldrað við orð hans um meirihluta á Alþingi fyrir því að vísa málinu í þjóðaratkvæðagreiðslu. Þar sem þingmenn hafi á þingi verið nýbúnir að hafna þjóðaratkvæðagreiðslu um málið þá þyki henni hæpið að ætla í rökstuðningi að styðjast við yfirlýsingar þeirra í fjölmiðlum um annað. Á Bessastöðum í gær kvað Ólafur Ragnar það einlæga von sína að niðurstaða leiddi til varanlegra sátta og farsældar fyrir Íslendinga um leið og hún legði grunn að góðri sambúð við allar þjóðir, en hann var jafnframt spurður út í möguleg áhrif ákvörðunar hans á ríkisstjórnina, sem lagt hafi ríka áherslu á að keyra málið í gegn.Björg Thorarensen „Málskotsrétturinn, eins og hann er tilgreindur í 26. grein stjórnarskrárinnar, felur eingöngu í sér að forseti taki afstöðu til þess hvort þjóðin eigi að meta tiltekin lög eða ekki. Afstaða einstakra ráðherra eða ríkisstjórnar til slíkrar ákvörðunar getur aldrei orðið úrslitaatriði í slíkri niðurstöðu,“ sagði Ólafur Ragnar. Þá virtist forsetinn ekki hafa áhyggjur af viðbrögðum erlendis. „Bretar og Hollendingar eru meðal elstu lýðræðisþjóða Evrópu og hljóta þannig að bera djúpa virðingu fyrir lýðræðislegum rétti þjóða eins og hann birtist í þjóðaratkvæðagreiðslum,“ sagði hann og bætti einnig við að lögin tækju gildi þrátt fyrir synjun hans og það myndi ekki breytast fyrr en með þjóðaratkvæðagreiðslu. „Með þessari ákvörðun hefur ekkert gerst sem ætti að gefa Bretum og Hollendingum tilefni til að bregðast við með neikvæðum hætti.“
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Íbúar flúðu undan tónlistarhátíð Bjarkar Innlent „Þú færð mig ekki til að segja já við þessu“ Innlent Angjelin Sterkaj laus úr haldi og sendur til Albaníu Innlent Eigendur Santé ákærðir fyrir vínsölu og peningaþvætti Innlent Stúlkan breytti frásögninni og Högna sleppt úr fangelsi Innlent Sólmyrkvaröðin á Keflavíkurflugvelli lengri en elstu menn muna Innlent Óraði ekki fyrir að ákvæðinu yrði beitt til að sleppa morðingja Innlent „Ég get ekki orða bundist“ Innlent Hvað á að gera við sólmyrkvagleraugun? Innlent Olíuborunum á Grænlandi frestað eftir viðræður við stjórnvöld Erlent Fleiri fréttir Tókst á við umdeilda rabbínann: „Þú ert hættulegur maður“ Forskot Já-hliðarinnar mælist minna ESB-málin í brennidepli og uppgjör eftir almyrkvann Einn handtekinn vegna gruns um líkamsárás og hótanir „Ég get ekki orða bundist“ Íbúar flúðu undan tónlistarhátíð Bjarkar Bein útsending: Málstofa og sýning um íslensk námsgögn Umferð um Flókalund 430 prósentum meiri en vanalega Eigendur Santé ákærðir fyrir vínsölu og peningaþvætti Allir í skýjunum með almyrkvann: Himnanir opnuðust á hárréttum tíma Greiddu atkvæði gegn ráðningu nýs bæjarstjóra Fjallabyggðar Gott að vera temmilega tortrygginn Sjá-liðar þekkjast boðið sem Þorgerður afþakkaði Óraði ekki fyrir að ákvæðinu yrði beitt til að sleppa morðingja Eftirköst almyrkvans og Rauðagerðismorðinginn laus úr haldi Fluttu veikan kajak-ferðalang Sólmyrkvaröðin á Keflavíkurflugvelli lengri en elstu menn muna Alin upp við að skrifa frekar skilaboð en að hringja „Þú færð mig ekki til að segja já við þessu“ Telur mikilvægi Viðreisnar aukast ef viðræðum verður hafnað Angjelin Sterkaj laus úr haldi og sendur til Albaníu Stúlkan breytti frásögninni og Högna sleppt úr fangelsi Bíll við bíl á Snæfellsvegi Myndaveisla: Fjölmenni á Seltjarnarnesi Hvað á að gera við sólmyrkvagleraugun? Almyrkvinn allsráðandi í kvöldfréttum Sýnar Maðurinn sem fannst látinn var íslenskur Bein útsending: Almyrkvi á sólu Vona að skýin víki fyrir sólinni eins og þau gerðu í Texas Kristrún þurfi að stíga upp – Ólafur beri ábyrgð á Nei-inu Sjá meira