Átta prósenta samdráttur milli ára 28. janúar 2010 03:00 Tölvugerð 787-þota Boeing-þotur voru algengastar á íslenska flugstjórnarsvæðinu í fyrra, Boeing 777-200 algengastar, 767-300 í öðru sæti og í þriðja sæti var Boing 757-200. Mynd/Boeing
Alls flugu 101.504 flugvélar um íslenska flugstjórnarsvæðið á síðasta ári, að því er fram kemur í tilkynningu Flugstoða. Mun það vera í þriðja sinn á jafnmörgum árum sem fjöldi véla fer yfir 100 þúsunda markið. „Ef miðað er við árið 2008 þá dróst flugumferð saman um 8 prósent en þá fóru 110.366 flugvélar um íslenska flugstjórnarsvæðið og höfðu aldrei orðið fleiri," segir í tilkynningunni. Í fyrra var rétt tæpur fjórðungur flugumferðarinnar, eða 24,4 prósent, vélar í flugi til og frá Íslandi. Árið 2008 var hlutfallið 27,8 prósent. „Að meðaltali komu 278 flugvélar á dag inn á svæðið." Á síðasta ári er flugumferðin sögð hafa verið mest í ágúst eða tæplega 12 þúsund flugvélar. „Eins og búast mátti við voru flugvélar Icelandair tíðustu gestirnir inni á svæðinu, sem er 5,4 milljónir ferkílómetra að stærð. Því næst komu í réttri röð þýska félagið Lufthansa, British Airways, United Airlines og Delta Airlines." Flugstoðir segja oftast hafa verið flogið inn á flugstjórnarsvæðið vegna flugleiðarinnar á milli Lundúna og Los Angeles. Í öðru sæti var svo flugleiðin milli Lundúna og San Francisco og svo í þriðja sæti milli Kaupmannahafnar og Keflavíkur. - óká
Mest lesið Loka aftur fyrir umferð á slóðum Vítisengla Innlent Rak frá Bretlandi til Íslands á einum mánuði Innlent „Það verður boðið fram í nafni VG“ Innlent Ellilífeyrisþegar sá hópur sem hafi það einna best Innlent Rándýr og stórbrotin afmæli hitta ekki í mark hjá krökkunum Innlent Bátur sekkur við Hafnarfjarðarhöfn Innlent Ferðamaður réðst á leiðsögukonu: „Ísland hefur brugðist mér“ Innlent „Þjóðaröryggisráð er ekki upp á punt“ Innlent Afplána líklegast í fjögur til fimm ár á Litla Hrauni Innlent Aftur flagnar Vesturbæjarlaug: „Eins og hún sé með skallablett“ Innlent Fleiri fréttir „Það verður boðið fram í nafni VG“ Loka aftur fyrir umferð á slóðum Vítisengla „Þjóðaröryggisráð er ekki upp á punt“ Rak frá Bretlandi til Íslands á einum mánuði Bátur sekkur við Hafnarfjarðarhöfn Ellilífeyrisþegar sá hópur sem hafi það einna best Rándýr og stórbrotin afmæli hitta ekki í mark hjá krökkunum Þór sækist eftir endurkjöri Furðar sig á þjóðaröryggisráði og rándýr barnaafmæli Aftur flagnar Vesturbæjarlaug: „Eins og hún sé með skallablett“ Þyrlan kölluð út vegna vélsleðaslyss á Langjökli „Gervigreind er líka fyrir heimilið“ Hringvegurinn opnaður á ný klukkan 17 Snæfellsnes orðið að vistvangi UNESCO „Stór húsnæðis- og efnahagspakki“ á leiðinni Afplána líklegast í fjögur til fimm ár á Litla Hrauni Þungir dómar ekki óvæntir og fyrsti vistvangur landsins Ferðamaður réðst á leiðsögukonu: „Ísland hefur brugðist mér“ Byrjað að moka í Hringveginn en talsverð vinna framundan Tíu gistu í fangageymslu og þar af tveir „peruölvaðir“ „Við þurfum ekki öll að fara á sjúkrahús“ Vilja RÚV af auglýsingamarkaði Ýmsar aðferðir til að ná niður drónum Jónína vill taka við af Ásmundi Einari „Við viljum bara finna fyrir öryggi“ Gerður sveitarstjóri Þingeyjarsveitar Þungur dagur, myndir frá óveðrinu og ítrekuð innbrot Verjandi Matthíasar hnýtir í dóminn Anna ljósa fallin frá Ásmundur Einar segir skilið við stjórnmálin Sjá meira