Ljósleiðaratenging meiri bylting en hringvegurinn 2. september 2010 05:15 Knútur Bruun. Eitt minnsta fjarskiptafélag landsins hefur ljósleiðaratengt Öræfasveit. Stofnkostnaður notenda nemur hálfri milljón króna. Einhugur var um að ráðast í framkvæmdina. Sömdu við Vodafone um þjónustu.
Formleg opnun ljósleiðaranets fyrir um 50 sveitabæi í Öræfasveit fer fram á morgun, föstudaginn 3. september. „Haldin verður opnunarhátíð í Hólmgarði í Öræfasveit," segir Knútur Bruun, stjórnarformaður Fjarskiptafélags Öræfinga. „Bæjarstjórinn á Höfn telur þetta meiri framfarir en opnun hringvegarins. Enda getur maður nú setið í Öræfasveit og átt viðskipti við heiminn allan, auk möguleika í tengslum við fjarkennslu og annað slíkt. Þetta bætir öll búsetuskilyrði og heldur ungu fólki heima í sveitinni." Lokið hefur verið uppsetningu og tengingu ljósleiðaranets sem nær allt frá Reynivöllum í austri að Skaftafelli í vestri. „Við þetta ljósleiðaranet eru tengdir allir bæir og fyrirtæki á svæðinu. Öræfasveitin er sem sagt öll komin í ljósleiðarasamband, jafnfullkomið og best gerist í þéttbýlinu. Knútur segir stofnun fjarskiptafélagsins og lagningu leiðarans hafa átt sér nokkra forsögu. „Auk Fjarskiptafélags Öræfinga, minnsta fjarskiptafélags landins, koma að verkefninu RARIK, sem átti meginstrenginn frá Reynivöllum og út í Skaftafell, og Fjarski sem er fyrirtæki í eigu Landsvirkjunar." Kerfið tengist svo inn á „Nató-ljósleiðarann" og þar með inn á hringtengingu um landið. „Og Vodafone flytur fyrir okkur allt efni á sömu kjörum og sömu gæðum og gerist í þéttbýli." Til bráðabirgða þarf Vodafone hins vegar að leigja gagnaflutning af Mílu vegna dráttar sem orðið hefur á að fyrirtækið komist í samband við einn af átta ljósleiðarastrengjum sem hringtengja landið. „Það er reyndar kapítuli út af fyrir sig að Míla skuli ekki hleypa þeim í strenginn," segir Knútur. Ráðist var í verkið eftir að sonur Knúts, Ingólfur Bruun, frétti af því að leggja ætti þriggja fasa rafmagn frá Reynivöllum og út í Skaftafell. „Hann hvatti til þess að lagður yrði ljósleiðari um leið." Með þessu segir Knútur að stórar fjárhæðir hafi sparast vegna þess hve jarðvegsvinna sé stór hluti af kostnaði við að leggja ljósleiðara. „Allir í sveitinni voru sammála um verkið og búið að borga þetta allt saman. Þessir rúmlega 50 bændur borga 15 milljónir króna og bæjarstjórnin styrkir verkið um sjö milljónir og Fjarski hefur lagt í verkið fimm til sex milljónir." Hver notandi borgar 500 þúsund krónur í stofnkostnað og telur Knútur að þetta verklag kunni að verða öðrum byggðum fordæmi við að færa fjarskiptamál til nútímans. „Við fengum enga styrki, ekkert frá Fjarskiptasjóði sem styrkir ekki svona verkefni, en á sama tíma og við vorum að ljúka við þetta fékk Míla, eða Síminn styrk til að setja upp ADSL-kerfi í sveitinni sem enginn kemur til með að nota." olikr@frettabladid.is
Mest lesið Stíga fram á Facebook, fordæma rektor og segja nóg komið Innlent Fær áfram tæpa hálfa milljón en staðgengillinn ekkert Innlent Urðu vitni að því þegar maður var hálshöggvinn Innlent Kæra freyðivínsviðburð með Lilju Alfreðs Innlent „Seðlabankastjóri gat ekki sagt það skýrar“ Innlent Starfsfólk á flótta og traustið horfið Innlent Páll Edwald vill sæti á lista Miðflokksins Innlent Starfsfólk búið að yfirgefa barnið þegar faðir kom að sækja það á leikskólann Innlent Starmer gagnrýndur af samflokksmönnum sínum Innlent Brast í grát fyrir dómi: „Ég er þekktur fyrir að vera sonur mömmu“ Erlent Fleiri fréttir Fær áfram tæpa hálfa milljón en staðgengillinn ekkert Starmer gagnrýndur af samflokksmönnum sínum Stíga fram á Facebook, fordæma rektor og segja nóg komið Aðeins eitt riðutilfelli allt síðasta ár Urðu vitni að því þegar maður var hálshöggvinn Páll Edwald vill sæti á lista Miðflokksins Kæra freyðivínsviðburð með Lilju Alfreðs „Seðlabankastjóri gat ekki sagt það skýrar“ Þyrla sótti skipverja sem fékk slitinn vír í bringuna Starfsfólk á flótta og traustið horfið Maður með leiðindi reyndist eftirlýstur af lögreglu Starfsfólk búið að yfirgefa barnið þegar faðir kom að sækja það á leikskólann Óheppileg tímasetning Þriggja bíla árekstur við Sprengisand „Þetta er sárara en tárum taki“ Reyndi að sækja gras en fékk gervigras Snúist ekki um að íbúar vilji ekki „fólk úr lægri stéttum“ í hverfið Yfir 60 leikskólastjórar komnir með nóg Hreindýratarfur kostar liðlega 240 þúsund krónur – svo er allt hitt Nafnlaus ábending upphaf skoðunar á starfsmönnum Bifrastar Enginn látist á þessu eða síðasta ári af völdum berkla Án rennandi vatns í á annan sólarhring Skapi óöryggi þegar lögregla sé allt í einu mætt á svæðið Fara ekki fram á gæsluvarðhald vegna slagsmála Lögregla að fá skýrari mynd af andláti konunnar Læknar kalla eftir sérstakri nefnd til að rannsaka alvarleg atvik Vara við svikasímtölum í nafni Sigríðar Bjarkar Breytingar hjá Viðreisn eftir afsögn Guðbrands Símafrí í grunnskólum Kópavogs Eins og að kasta kjarnorkusprengju inn í fjölskyldur Sjá meira