Innlent

Loforð um lýðræðisumbætur ekki verið efnd

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Þór Saari gagnrýnir ríkisstjórnina fyrir það að lýðræðisumbætur hafi ekki náð fram að ganga. Mynd/ Vilhelm.
Þór Saari gagnrýnir ríkisstjórnina fyrir það að lýðræðisumbætur hafi ekki náð fram að ganga. Mynd/ Vilhelm.
Þór Saari, þingmaður Hreyfingarinnar, sagði við umræður á Alþingi í dag að loforð um lýðræðisumbætur sem gefnar hefðu verið í aðdraganda alþingiskosninganna á síðasta ári hefðu verið svikin.

Benti hann á að frumvarp sem lagt hefði verið fram um þjóðaratkvæðagreiðslur hafi ekki náð að ganga. Þá hafi frumvarp Hreyfingarinnar um fjölgun í sveitastjórnum ekki náð fram að ganga. Hann sagði að ein meginástæðan fyrir þessu væri sú að þingmenn hugsuðu ævinlega fyrst um sjálfa sig, þá flokkinn sinn, en síðan um almenning.

Þór sagðist hins vegar binda miklar vonir við stjórnlaganefnd og fyrirhugaðan þjóðfund og stjórnlagaþing. Hins vegar væri brýnt að niðurstaða stjórnlagaþingsins færi umsvifalaust í þjóðaratkvæðagreiðslu að þinginu loknu.




Tengdar fréttir

Bjartari tímar framundan

Mikill árangur hefur náðst á flestum sviðum samfélagsins. Það er árangur sem bjartsýnustu menn óraði ekki fyrir og hefur vakið athygli erlendis, sagði Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra þegar þing tók aftur til starfa í dag að loknu sumarleyfi. Benti hún á að aukinnar bjartsýni gætti, atvinnuleysi hefði minnkað og helstu hagvísar bentu til að bjartari tímar væru framundan




Fleiri fréttir

Sjá meira


×