Innlent

Aðstoðarmaður Jóhönnu vill Rögnu á Bessastaði

Ragna Árnadóttir, fyrrverandi ráðherra.
Ragna Árnadóttir, fyrrverandi ráðherra. Mynd/Valgarður Gíslason
Hrannar Arnarsson, aðstoðarmaður Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra, vill að Ragna Árnadóttir, fyrrverandi dómsmála- og mannréttindaráðherra, bjóði sig fram til embættis forseta Íslands. Hann segir að Rögnu og Gylfa Magnússonar verði sárt saknað.

Gylfi og Ragna létu í dag af embættum sem ráðherrar en þau hafa átt sæti í ríkisstjórn í um 19 mánuði eða frá 1. febrúar 2009. Gylfi hyggst snúa sér að kennslu í Háskóla Íslands en ekki liggur fyrir hvað tekur við hjá Rögnu.

„Gylfa og Rögnu verður sárt saknað - topp fólk sem frábært væri að fá í pólitík," skrifar Hrannar á samskiptavefinn Facebook í kvöld. „Gylfi er reyndar toppkennari líka - það þekki ég af eigin raun. Ragna mun sóma sér vel hvar sem er - ég myndi vilja sjá hana á Bessastöðum."




Tengdar fréttir

Hyggja ekki á frama í pólitík

Hvorki Ragna Árnadóttir né Gylfi Magnússon sem létu af ráðherraembætti dag hyggja á frama í pólitík. Gylfi og Ragna settust í ráðherrastól þegar minnihlutastjórn Vinstri grænna og samfylkingarinnar var mynduð í byrjun síðasta árs. Þau gegndu því ráðherraembætti í tæpa 19 mánuði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×