Innlent

Ísfélagið með tvö skip í smíðum í Chile

Skip Ísfélagsins sem er í byggingu í Chile.
Skip Ísfélagsins sem er í byggingu í Chile.

Óvissa er nú uppi um ástand tveggja skipa sem Ísfélagið í Vestmannaeyjum er með í smíðum í borginni Talcuano í Chile sem varð illa úti í jarðskjálftanum á laugardag. Skipasmíðastöðin mun vera mjög illa farin og þegar hafa borist fregnir af því að varðskipið Þór sé skemmt en það er smíðað í sömu stöð.

Hjá Ísfélaginu fengust þær upplýsingar að litlar sem engar fregnir hafi borist frá Chile enda símasambandslaust að mestu við landið. Skipin tvö eru mislangt á veg komin, annað komið með skrokk og brú, en hitt á lengra í land.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×