Flutningur hælisleitenda til Grikklands verði stöðvaður 23. mars 2010 17:22 Jóhanna K. Eyjólfsdóttir, framkvæmdastjóri Íslandsdeildar Amnesty International.
Amnesty International leggur til að öll aðildarríki Dyflinnar-reglugerðarinnar stöðvi nú þegar allan flutning hælisleitenda til Grikklands. Í nýrri skýrslu samtakanna, Dyflinnar gildran, kemur fram að einstaklingar sem sendir eru til Grikklands á grundvelli Dyflinnar-reglugerðarinnar eiga á hættu að verða fyrir margvíslegum mannréttindabrotum, þar með talið að vera fluttir nauðugir til staða þar sem þeir eiga á hættu ofsóknir. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Íslandsdeild Amnesty. Í skýrslunni er að finna úttekt á áhrifum reglugerðarinnar á réttindi hælisleitenda og nákvæma skoðun á aðstæðum þeirra í Grikklandi. „Dregið er fram hvernig grísk yfirvöld hafa brugðist að veita hælisleitendum sanngjarna málsmeðferð. Þeir hafa ekki fullnægjandi aðgang að lögfræðiráðgjöf, túlkaþjónustu og nauðsynlegum upplýsingum. Dæmi eru um að hælisleitendum hafi verið vísað nauðugum til Tyrklands," segir í tilkynningunni. Þar segir að skýrslan sýni fram á að forsenda Dyflinnar-reglugerðarinnar, að öll ríki sem eiga aðild að reglugerðinni veiti flóttamönnum samsvarandi vernd, standist ekki. Hælisleitendur sem komi fyrst til Grikklands standi oftar en ekki frammi fyrir brotum á mannréttindum og ógn um öryggi sitt. „Frá því í apríl 2008, hefur Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hvatt aðildarríki Dyflinnar-reglugerðarinnar til að senda ekki hælisleitendur aftur til Grikklands. Þessi krafa Flóttamanna-stofnunarinnar var gerð vegna alvarlegra bresta í meðferð hælismála í Grikklandi, auk þess sem móttaka og aðstæður hælisleitenda í landinu eru óásættanlegar. Rannsókn Amnesty International sýnir að ástandið hefur versnað enn frekar, einkum eftir gildistöku laga í júlí 2009 þar sem áfrýjunarréttur hælisleitenda er skertur." Að mati Amnesty International er ljóst að hælisleitendur í Grikklandi njóti ekki nauðsynlegrar verndar og réttindi þeirra séu ekki virt að fullu. „Þrátt fyrir þetta halda ríki, sem eiga aðild að Dyflinnar-reglugerðinni, áfram að senda fólk til baka til Grikklands. Þau lönd sem endursenda hælisleitendur þangað verða að horfast í augu við þá staðreynd að hælisleitendur þar njóta ekki þeirrar verndar sem alþjóðalög kveða á um. Amnesty International leggur til að öll aðildarríki Dyflinnar-reglugerðarinnar stöðvi nú þegar allan flutning hælisleitenda til Grikklands."
Mest lesið Grunsamlegt ferðalag og fjarstæðukenndar skýringar Innlent „Ég hata andstæðing minn, fyrirgefðu Erika“ Erlent Kvartmilljón fyrir bólusetningu eftir alvarleg veikindi dóttur Innlent „Ég horfði á son minn brotna meira og meira, ár eftir ár“ Innlent „Dýrlingurinn“ aftur með leigubílaleyfi Innlent Lýsir villu og svima en segist hafa séð ljósið Innlent Ætla að tengja paracetamol við einhverfu Erlent Seldi dóp fyrir fjórtán milljónir á hálfu ári Innlent Þrettán konur höfðu samband svo að nauðgarinn færi í fangelsi Innlent Eldra fólk þurfi ekki að endurnýja skírteinið svo oft Innlent Fleiri fréttir 20 börn frá Grænlandi í sundi, skautum og í heimsókn hjá forsetanum Þrettán konur höfðu samband svo að nauðgarinn færi í fangelsi Þrír enn í gæsluvarðhaldi vegna umfangsmikils fíkniefnamáls Löng bið eftir að nauðgari hefji afplánun og betlmenning Sleppt lausum eftir yfirheyrslu Seldi dóp fyrir fjórtán milljónir á hálfu ári Lýsir villu og svima en segist hafa séð ljósið Stefnir í prófkjör, borgarfulltrúar undir feldi og hugsanlega sótt að Heiðu Framlengja gistiheimildina fram á vor Eldra fólk þurfi ekki að endurnýja skírteinið svo oft Grunsamlegt ferðalag og fjarstæðukenndar skýringar „Nauðsynlegt að þetta verði gert af krafti“ Fólk hvatt til að taka strætó Frakkar viðurkenna Palestínu og nýr geðspítali gæti risið í Fossvogi „Ég horfði á son minn brotna meira og meira, ár eftir ár“ Nú má heita Ívalú, Þorbirna og Emerentíana Kvartmilljón fyrir bólusetningu eftir alvarleg veikindi dóttur Frítt í Strætó um allt land í dag Réðst á konur og sló í miðborginni „Dýrlingurinn“ aftur með leigubílaleyfi ESB myndi taka Íslandi opnum örmum Tré ársins 2025 vex í kletti í Ölfusá Íslendingar í flugumferðarstjórn á stærsta flugvelli Grænlands Braust inn og stal bjórkútum Vilja ryðja brautina fyrir aðra í baráttunni við andlitslaust kerfi Eldur kviknaði í íbúð í Bakkahverfi Sjálfstæði Palestínu, minningarathöfn um Kirk og tré ársins Segir það slæma hugmynd að útfæra áminningarskyldu fyrir allan vinnumarkaðinn Tveir fluttir á slysadeild eftir slys við Hvalfjarðargöng Hver verður formaður Pírata?: „Ekki séns“ Sjá meira