Kæfði átta börn jafnóðum og þau fæddust Óli Tynes skrifar 29. júlí 2010 13:33
Frönsk kona hefur viðurkennt að hafa myrt átta börn sín jafnóðum og þau fæddust, á tuttugu og tveggja ára tímabili. Dominique Cottrez er 45 ára gömul og starfar sem sjúkraliði. Upp um hana komst eftir að hún og eiginmaður hennar fluttu í nýtt hús skammt frá því gamla. Svartir plastpokar Nýi eigandinn að húsi þeirra var að grafa fyrir gosbrunni síðastliðinn laugardag þegar hann kom niður á tvo svarta plastpoka með smáum beinum í. Honum datt fyrst í hug að beinin væru af gæludýrum en fannst fundurinn þó svo grunsamlegur að hann hafði samband við lögreglu. Þar var skjótlega greint að beinin væru af tveim kornabörnum og leit var hafin í garðinum og húsinu. Þar fundust sex plastpokar til viðbótar. Hjónin voru þá handtekin. Dominique viðurkenndi fljótlega að hún hefði kæft börnin eftir fæðingu og grafið þau í garðinum. Eiginmanninum sleppt Hún fullyrti hinsvegar að eiginmaður hennar Pierre-Marie hefði ekkert vitað um börnin. Honum hefur nú verið sleppt án ákæru. Pierre-Marie er daglaunamaður sem vinnur hjá hinu opinbera. Hjónin eiga fyrir tvær uppkomnar dætur og eitt barnabarn. Nágrannar þeirra voru sem þrumu lostnir. Þeir höfðu ekkert nema gott um hjónin að segja. Þau væru vingjarnleg, prúð og hjálpsöm og alltaf reiðubúin að taka þátt í öllum samfélagsverkefnum. Enginn sá að hún væri ófrísk Nágrannakona sagði að Dominique væri yndisleg manneskja sem helgaði fjölskyldunni líf sitt. Hún sagði að enginn hefði vitað til þess að Dominique yrði ófrísk eftir að hún fæddi dæturnar tvær á áttunda áratugnum. Dominique væri feitlagin og af bændafólki komin þannig að henni hefði líklega tekist að leyna þunguninni. Dominique á yfir höfði sér lífstíðarfangelsi.
Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Erlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Fleiri fréttir Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Þúsundir tálma göngu Óraníureglunnar Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Heimili rýmd nærri herflugstöð Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair „Ég hafna samningi þeirra“ Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sex ára stúlka setti heimsmet Hafi hafnað tillögu Írana um opnum Hormússunds Sjá meira