Erlent

Ástralir ganga til kosninga

Kosningar í Ástralíu.
Kosningar í Ástralíu.

Ástralir ganga að kjörborðinu í dag en mjög mjótt er á munum milli Verkamannaflokksins sem nú fer með stjórn og Frjálslyndaflokksins. Nýir leiðtogar leiða báða flokka.

Julia Gillard var kosin leiðtogi Verkamannaflokksins í júní eftir að kannanir höfðu sýnt mjög slakt gengi stjórnarflokksins og boðaði hún þegar til kosninga til að fá umboð sitt staðfest.

Tony Abbot leiðir Frjálslyndaflokkinn sem tók við flokknum fyrir átta mánuðum. Kannanir nú sýna að Verkamannaflokkurinn er með rétt rúmlega 50 prósenta fylgi.

Ef flokkurinn nær ekki meirihluta í kosningunum í dag, yrði það í fyrsta skipti frá árinu 1933 að kjósendur höfnuðu stjórnarflokki í kosningum eftir aðeins eitt kjörtímabil við völd.

Fjórtán milljónir eru á kjörskrá.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×