Reykjavík verði gerð að alvöru hjólaborg 1. febrúar 2010 03:00 Á myndinni má sjá Borgartúnið eftir að sérstakur hjólastígur hefur verið lagður við hlið akbrautar. Þannig stígur myndi til dæmis gera hjólið álitlegan valkost í hádegishléi starfsmanna sem vinna í Borgartúninu og ætla að skreppa í bæinn í hádeginu, bendir Gísli Marteinn á. „
Heildarmarkmið áætlunarinnar er að gera Reykjavík að framúrskarandi góðri hjólaborg,“ segir Gísli Marteinn Baldursson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks og formaður starfshóps um hjólreiðaáætlun sem samþykkt hefur verið í borgarstjórn. „Reykjavík hefur mjög margt til þess að bera að verða góð hjólaborg,“ segir Gísli sem bendir á til dæmis að borgin sé ekki mjög hæðótt, auðvelt sé að ferðast meðfram strönd hennar, götur séu tiltölulega breiðar sem gefi svigrúm til að bæta við hjólastígum og veðurfar sé gott fyrir hjólreiðafólk meirihluta ársins. Hjólreiðaáætlunin er ekki komin í formlegt ferli þannig að ekki hefur verið lagt mat á kostnað við gerð hjólastíga. Gísli Marteinn bendir hins vegar á að kostnaður við að leggja hjólastíg sé brotabrot af lagningu vega og takist það markmið að fá fleiri Reykvíkinga á hjólhestinn í stað bifreiða þá verði minna slit á vegum borgarinnar. Ýmsar athyglisverðar upplýsingar og tölur er að finna í áætluninni. Til að mynda kemur þar fram að heildarkostnaður vegna reksturs hjóls á ári hverju teljast vera 9.000 krónur. Heildarkostnaður vegna reksturs bíls er 900.000 þúsund, munurinn eru 891.000 krónur. Bent er á að ef að tíu prósent aukning verði á hjólreiðum á kostnað ökuferða sparist níu milljarðar í rekstrarkostnaði reykvískra heimila. Gísil Marteinn segir kannanir hafa leitt í ljós að Reykvíkingar hafi áhuga á að bæta aðstöðu til hjólreiða í borginni. „Af því yrði heilbrigðislegur ávinningur, því hjólatúr á hverjum degi skilar sér í betri heilsu. Auk þess sparast peningar, bæði í rekstri heimila og borgarinnar vegna minna slits á vegum. Mengun verður einnig umtalsvert minni.“ Í áætluninni eru settar fram hugmyndir um nýjar hjólaleiðir í Reykjavík. Markmiðið er að tengja úthverfin betur kjarna borgarinnar, til dæmis með brú yfir Elliðaárósa svo dæmi séu tekin auk þess sem þétta á net hjólastíga innan kjarna Reykjavíkur. Sem dæmi um það er hjólreiðastígur frá Laugardalnum, um Sundlaugarveg, Borgartún og Skúlagötu, niður í miðbæ Reykjavíkur. „Þessi leið er þægileg og myndi tengja saman útivistarsvæðið í Laugardal við miðbæinn,“ segir Gísli Marteinn sem segir að þessi stígur sé ekki flókinn í framkvæmd og því raunhæfur möguleiki á næstunni.sigridur@frettabladid.is Leiðin stytt Hér má sjá kort af hjólastíg sem lagt er til að lagður verði frá Laugardalnum niður í miðbæ.
Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Innlent Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Erlent Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Innlent Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Fleiri fréttir Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sjá meira