Innlent

Maður á áttræðisaldri dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir misnotkun

Karlmaður á áttræðisaldri var dæmdur í tveggja ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness fyrir kynferðisbrot gegn stúlku sem þá var fjórtán ára með því að hafa frá hausti eða vetri 2001, til þess dags er stúlkan varð 18 ára, tælt hana með gjöfum, meðal annars peningum, skartgripum og fatnaði, og með því að nýta sér yfirburði sína gagnvart stúlkunni vegna aldurs- og þroskamunar, til að hafa við sig nánast daglega samræði og önnur kynferðismök.

Stúlkan kvaðst hafa séð ákærða fyrst árið 2000 þegar hún var 13 ára og að vinna í kjötborði Hagkaupa á Smáratorgi, en þangað hefði maðurinn komið að versla. Síðar hefði hún verið á leið heim til sín fótgangandi í vondu veðri og illa klædd þegar ákærði hefði stöðvað bifreið sína og boðið henni far.

Maðurinn hefði við sama tækifæri boðið henni vinnu, gefið henni símanúmer sitt og 5000 krónur í peningum. Sagðist brotaþoli halda að þetta hefði verið í september árið 2000. Einhverju síðar hefði ákærði haft samband við hana og farið með hana í skartgripabúð þar sem hún hefði mátt velja sér gjöf. Þá hefði ákærði haldið áfram að gefa henni gjafir og peninga.

Fljótlega hefði ákærði farið að bjóða henni heim til sín og meðal annars boðið henni að nota ljósabekk, sem hann hefði verið með á heimili sínu.

Stúlkan kvaðst hafa átt kynferðislegt samneyti við manninn nánast daglega frá því að hún var 13 ára til tvítugs, það er til vorsins 2007, en þá hefðu þau hist síðast og stundað kynlíf. Þegar hún var 14 ára hefði hún farið að neyta fíkniefna, en hún sagðist hafa deyft sig með fíkniefnum áður en hún heimsótti manninn. Hún sagði að maðurinn hefði vitað af fíkniefnaneyslu hennar.

Þá sagðist stúlkan hafa smitast af klamydíu hjá manninum, en það hefði gerst áður en hún fór að stunda kynlíf með öðrum mönnum en honum.

Í niðurstöðu Héraðsdóms Reykjaness segir að maðurinn eigi sér engar málsbætur. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að ákærði braut gróflega og ítrekað gegn ungri stúlku á viðkvæmu aldurs- og þroskaskeiði hennar. Þá er litið til þess að brot mannsins var viðvarandi og stóð yfir í langan tíma.

Mátti honum vera ljóst hversu alvarlegar afleiðingar atferli hans hlaut að hafa fyrir líf og sálarheill brotaþola eins og segir í dómi.

Fangelsisdómur mannsins er óskilorðsbundinn.






Tengdar fréttir

Öldungur í Kópavogi kærður fyrir kynferðislega misnotkun

75 ára gamall karlmaður úr Kópavogi hefur verið kærður til lögreglunnar fyrir að misnota stúlku kynferðislega á átta ára tímabili, frá því því að hún var tólf ára til tvítugs. Björgvin Björgvinsson, yfirmaður kynferðisbrotadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, staðfesti við Vísi að málið væri til rannsóknar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×