Hjúkrunarheimili Hrafnistu vígt í Kópavogi 18. mars 2010 12:47 Mynd/GVA
Nýtt hjúkrunarheimili Hrafnistu verður vígt við Boðaþing í Kópavogi á morgun. Rúm átta ár eru síðan nýtt og sérhannað hjúkrunarheimili tók til starfa á höfuðborgarsvæðinu. Hrafnista í Kópavogi verður rekin eftir nýrri hugmyndafræði í öldrunarþjónustu sem ekki hefur verið reynd áður hér á landi. Hún felur í sér að sameina bestu kosti sjálfstæðrar búsetu við það öryggi sem hjúkrunarheimilin hafa uppá að bjóða, að fram kemur í fréttatilkynningu frá Sjómannadagsráði Reykjavíkur og Hafnarfjarðar. Hugmyndafræðin byggir á þátttöku íbúanna sjálfra og aðstandenda þeirra í hinu daglega lífi á heimilinu þar sem starfsfólk og íbúar vinna saman að því að skapa hlýlegt og virkt samfélag. Öll hönnun húsnæðis tekur mið af þessari hugmyndafræði.Fyrri áfangi af tveimur Í kjölfar vígslunnar á morgun hefst rekstur í fyrri áfanga byggingar Hrafnistu við Boðaþing með rýmum fyrir 44 einstaklinga. Alls er gert ráð fyrir rýmum fyrir 88 aldraða á hjúkrunarheimilinu og verður seinni áfanginn tekinn í notkun á næstu árum. Við upphaf rekstrarins munu á bilinu 40 til 50 manns starfa á hjúkrunarheimilinu. Félags- og tryggingamálaráðuneytið og Kópavogsbær hafa byggt hjúkrunarheimilið og falið reksturinn Sjómannadagsráði, eiganda Hrafnistuheimilanna.Hrafnistukórinn flytur nokkur lög Við vígsluathöfnina á morgun flytja stutt ávörp félags- og tryggingamálaráðherra, Árni Páll Árnason, bæjarstjóri Kópavogsbæjar, Gunnsteinn Sigurðsson, og formaður Sjómannadagsráðs, Guðmundur Hallvarðsson. Að lokinni blessun sr. Guðmundar Karls Brynjarssonar, flytur Hrafnistukórinn nokkur lög.
Mest lesið Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Innlent Kornabarn reyndist á lífi í líkhúsi Erlent Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Innlent „Ef það gerist aftur mun þetta versna til muna!“ Erlent Ekki jákvætt þegar lögregla tekur af manni launin Innlent Kristrún um Trump: „Það er hlýtt á milli okkar“ Innlent Ætla aftur að mála regnbogafánann Innlent Rússneska herskipið aftur innan lögsögunnar Innlent Sníkjudýrsaðferðin komin til Íslands: Hvers vegna var efnunum komið fyrir í sjókistu? Innlent Sneri sér við, greip í spaðann á Kristrúnu og gekk út Innlent Fleiri fréttir Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Ætla aftur að mála regnbogafánann Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Rússneska herskipið aftur innan lögsögunnar Jón Ingvar vildi níutíu milljónir en fær ekki krónu Kristrún um Trump: „Það er hlýtt á milli okkar“ Ríkisútvarpið braut ekki gegn siðareglum Trump, hóteldeilur og VestFest í kvöldfréttum Evrópusambandið sé verkfæri til að ná stöðugleika Stjórnandi drónans taldi sér ógnað og byssumaðurinn dæmdur Aukin framlög til varnarmála og öflugur stuðningur við Úkraínu á leiðtogafundi NATO Talið að tveir hafi staðið að meintum hatursglæp Gæsluvarðhald framlengt í Straumsvíkurmálinu Lögreglan leitar þessara manna Ísland skari fram úr ESB á flestum mælikvörðum Rannsaka málið sem hatursglæp Sneri sér við, greip í spaðann á Kristrúnu og gekk út Eldsvoði á Siglufirði nam þriðjungi bættra tjóna Ekki jákvætt þegar lögregla tekur af manni launin Fara áfram fram á varðhald yfir öllum níu Fær mál vegna sáðláts í andlit ekki tekið upp á ný Raforkueftirlitið fylgist með að lægri raforkukostnaður skili sér til neytenda Spenna á ráðstefnu NATO, raforkukostnaður og biskup um regnbogafánann „Líkist meira fána Grænhöfðaeyja heldur en þeim íslenska“ Lokuð akrein á Suðurlandsvegi og kvikmyndatökur á Krýsuvíkurleið Ummæli Trump um Grænland þurfi ekki að koma á óvart Skemmdarvargar máluðu yfir regnbogafánann Bjóða 250 þúsund krónur fyrir staðsetningu hvalveiðiskipanna Sníkjudýrsaðferðin komin til Íslands: Hvers vegna var efnunum komið fyrir í sjókistu? Hættuástand skapist eftir fráhvarf 3G Sjá meira