Sígaunar héldu 200 börnum í þrælkun Óli Tynes skrifar 28. september 2010 12:45 Einn forsprakkanna handtekinn.
Tuttugu og sex sígaunar eru nú fyrir rétti í Rúmeníu sakaðir um að hafa rænt á annaðhundrað börnum sem voru send til Vestur-Evrópu til þess að betla og stela. Flest barnanna voru send til Bretlands. Börnunum var rænt frá fátækum heimilum. Þau voru þjálfuð í vasaþjófnaði og hnupli. Sum þeirra voru afskræmd til þess að þeim gengi betur að betla. Hótuðu meiðslum og refsingum Ræningjarnir sögðu fjölskyldum barnanna að þau yrðu meidd ef fjölskyldurnar væru með uppsteit. Sömuleiðis var börnunum sagt að fjölskyldunum yrði refsað ef þau hlýddu ekki. Þegar til Bretlands kom voru börnin undir ströngu eftirliti við betl sitt og þjófnaði. Þau þurftu að skila eftirlitsmönnum sínum öllu sem þau náðu í. Yfirvöld í Rúmeníu komust á slóð gengisins þegar stór einbýlishús byrjuðu að rísa í hverfum sígauna. Könnun leiddi í ljós að verið var að reisa þau fyrir fólk sem hafði engar sýnilegar tekjur. Börn skotvopn og peningar Þegar frekari rannsókn bæði í Rúmeníu og Bretlandi leiddi í ljós umfang starfseminnar var gripið til sameiginlegra aðgerða. Það var í apríl á síðsta ári. Yfir 300 lögregluþjónar gerðu húsleitir samtímis í löndunum tveimur. Furðu lostnir lögregluþjónar fundu þá 181 barn sem hafði verið haldið í þrælkun. Börnin voru á aldrinum nokkurra mánaða til 17 ára. Kornabörnin voru sett í fang betlaranna til þess að auka tekjur þeirra. Einnig fannst heilmikið af skotvopnum, hríðskotarifflar og sprengjuvörpur. Þá lagði lögreglan hald á hundruð þúsunda sterlingspunda í reiðufé, skartgripi, bíla og húseignir.
Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Innlent Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Innlent Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður Innlent Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent 56 prósent segja nei í Norðausturkjördæmi Innlent „Alveg skýrt að unga fólkið segir nei“ Innlent Fleiri fréttir „Nú er komið að mér“ Ávarpar norsku þjóðina í fyrsta skipti sem konungur Milljónir í sekt fyrir að veðja á ræður forsetans Minnst þrjátíu og sjö látin eftir árás Rússa Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Kalla bandaríska sendiherrann á teppið vegna svívirðinga um ráðherra Hver er Hákon VIII Noregskonungur? Sagður hafa logið árum saman um morðið á Tupac Er sagður hafa lagt spilin á borðið varðandi Úkraínu Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Haraldur V Noregskonungur er látinn Breytti heiti Ontaríó-vatns í Ameríku-vatn Óttast fleiri flóð vegna skriða í fjöllunum Ljúka greiningu á viðveru í Evrópu fyrr en til stóð „Slátrarinn í Bosníu“ Ratko Mladic látinn Rísandi stjarna AfD umkringd nýnasistum Staðgöngumóðir eignast „tvíbura“ með sitthvora foreldrana Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Heilsu Haraldar hrakar enn Að minnsta kosti 165 eru látnir og yfir 1.500 saknað Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Eiginmaður Mörtu Noregsprinsessu fékk nýtt nýra Erlendir fjölmiðlar beina sjónum að þjóðaratkvæðagreiðslunni Carney verður viðstaddur stefnuræðu ESB-forseta Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Myrti foreldra sína, ömmu, systur og fjögur börn Fjórtán nýburar dóu í eldsvoða á fæðingardeild Stjórnvöld í Íran hyggjast banna samskipti við erlenda miðla Sjá meira