Innlent

Gerir ráð fyrir að Björgvin snúi aftur

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Anna Margrét Guðjónsdóttir segist gera ráð fyrir að Björgvin komi til baka á Alþingi. þangað til að annað komi í ljós.
Anna Margrét Guðjónsdóttir segist gera ráð fyrir að Björgvin komi til baka á Alþingi. þangað til að annað komi í ljós.
Anna Margrét Guðjónsdóttir, sem situr á Alþingi í fjarveru Björgvins G. Sigurðssonar þingmanns Samfylkingarinnar, segist ekki vita hvort að hún muni sitja áfram á Alþingi. Nýtt þing hefst með guðsþjónustu í Dómkirkjunni á föstudaginn, samkvæmt venju.

Björgvin G. Sigurðsson var viðskiptaráðherra í aðdraganda bankahrunsins. Hann var sakaður um vanrækslu í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis. Hann vék sæti af Alþingi eftir að skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis kom út og sagðist ætla að gefa þingmannanefndinni svigrúm til að vinna vinnuna sína í friði. Nú hefur verið tekin ákvörðun um að Björgvin verði ekki ákærður fyrir vanrækslu.

Anna Margrét veit ekkert um framhaldið. „Það veltur á Björgvini," segir Anna Margrét. Hún segist ekki hafa fengið skilaboð frá Björgvini um hvað hann hygðist gera. „Ég geng út frá því að hann komi aftur þangað til að annað kemur í ljós. Þangað til að hann lætur mig vita eða einhver annar," segir Anna Margrét.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×