Rauði krossinn vill fá 3000 til að ganga til góðs 28. september 2010 14:18
Rauði kross Íslands óskar eftir 3.000 sjálfboðaliðum um allt land laugardaginn 2. október til að Ganga til góðs. Í tilkynningu frá Rauða krossinum segir að markmiðið sé að virkja tæplega 1 prósent af íslensku þjóðinni til að sameinast um eitt málefni og leggja sitt að mörkum til að byggja betri heim. Þetta er í sjötta sinn sem Rauði krossinn gengur til góðs til styrktar alþjóðaverkefnum sínum. Í söfnuninni er gjarnan litið til langtíma samstarfsverkefna Rauða kross Íslands sem eiga undir högg að sækja varðandi fjármögnun, en þar sem þörfin er engu að síður eins aðkallandi og brýn og þar sem náttúruhamfarir og átök geisa. „Í söfnuninni í ár hefur Rauði krossinn sett á oddinn verkefni félagsins í Malaví fyrir börn og ungmenni sem eiga um sárt að binda vegna alnæmis, og Síerra Leóne þar sem um eru að ræða verkefni fyrir stríðshrjáð börn og endurhæfingu barnahermanna," segir ennfremur. Þá segir að það sem geri söfnunina Göngum til góðs frábrugðna öðrum söfnunum er að ekki er einungis verið að leita eftir fjárstuðningi heldur einnig að fá fólk til að sýna samstöðu í verki með því að gerast sjálfboðaliðar eina dagsstund. „Þannig geta allir tekið þátt í söfnuninni - ýmist með því að ganga eða gefa. Þeir sem ganga hús úr húsi gegna ákaflega mikilvægu hlutverki, en það væri til lítils ef ekki væru einhverjir heima til að taka á móti þeim og stinga fé í baukinn." Á höfuðborgarsvæðinu eru 24 söfnunarstöðvar í öllum hverfum Reykjavíkur og í Kópavogi, Garðabæ, Hafnarfirði, Mosfellsbæ og á Álftanesi og Seltjarnarnesi. Fólk sem vill ganga til góðs með Rauða krossinum er hvatt til að skrá sig á www.raudikrossinn.is eða í síma 570 4000.
Mest lesið Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Innlent Ráðgjafar áhyggjufullir og Trump gerði hlé á árásum Erlent Stærsta rafflugvélin fær grænt ljós á fyrsta flug Innlent Lýsa eftir þekktum öfgamanni Erlent Fokin tjöld og slagsmál á Bræðslunni Innlent Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Innlent Fluttur á bráðamóttökuna eftir vinnuslys í Kópavogi Innlent Hvassviðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni Innlent Modi féllst á kröfur „Kakkalakkanna“ Erlent Evrópumálin, sala áfengis og kjarasamningar á Sprengisandi Innlent Fleiri fréttir Strandaglópar á Spáni og vont veður á Brennslunni Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Fokin tjöld og slagsmál á Bræðslunni Fluttur á bráðamóttökuna eftir vinnuslys í Kópavogi Evrópumálin, sala áfengis og kjarasamningar á Sprengisandi Stærsta rafflugvélin fær grænt ljós á fyrsta flug Hvassviðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Sjá meira