Listamiðstöð barónessu við Sætún í uppnámi 8. maí 2010 16:00 Barónessan Francesca von Habsburg seldi verk á uppboði í London fyrir hundrað milljónir sem áttu að nýtast í þetta verkefni en þeir peningar hafa aldrei sést.
Tímaritið Art Newspaper greinir frá því að barónessan Francesca von Habsburg ætli að draga úr umsvifum sínum í íslensku listalífi. Listamiðstöð í Kaaber-húsinu er meðal þess sem sett verður í salt. Art Newspaper slær því upp í grein eftir blaðamanninn Clemens Bomsdorf að barónessan Francesca von Habsburg ætli að draga úr starfi sínu á Íslandi eftir að hafa verið áberandi í íslensku listalífi. Francesca hefur stutt fjölda íslenskra listamanna undanfarin ár og lagt þeim lið en meðal þess sem barónessan hyggst setja í salt er fyrirhuguð listamiðstöð í gamla Kaaber-húsinu við Sætún. Hún átti að hýsa Nýlistasafnið, dánarbú Dieter Roth og stóran hluta af umfangsmiklu listaverkasafni barónessunnar. Birta Guðjónsdóttir, safnstjóri Nýlistasafnsins, segir þetta vera „ekki-frétt" hjá Art Newspaper. „Þessi listamiðstöð náði aldrei lengra en að vera hugmynd sem var kastað fram. Menn fóru ef til vill aðeins fram úr sér í umræðu og umfjöllun um þetta mál," segir Birta. Barónessan sagði í viðtali við Morgunblaðið fyrir rúmu ári að listamiðstöðin væri nauðsynleg í ljósi bankahrunsins. Von Habsburg seldi síðan þrjátíu listaverk í sinni eigu fyrir meira en hundrað milljónir króna á uppboði í London og sagði í umræddu viðtali að þann pening ætti að nota til að leggja þessu verkefni lið. Listamiðstöðin átti að rísa í Kaaber-húsinu við Sætún. „Ég veit að sem stendur hefur enginn á Íslandi fé til að setja í stofnun sem þessa, og þess vegna ákvað ég að selja þessi verk úr safninu mínu, safna fé og setja verkefnið á flot. Þetta verður að gerast NÚNA, í þessum aðstæðum, á þessum tíma," sagði Habsburg við Morgunblaðið. Birta segir engin samskipti hafa átt sér stað við barónessuna frá þessum tíma. Og þau hafi ekkert séð af þessum peningum sem barónessan lýsti yfir að skyldi varið til safnsins og uppbyggingu þess. „Og við áttum aldrei von á því að þessir peningar myndu skila sér beint til Nýlistasafnsins. Ég veit ekkert hvað gerist í framtíðinni. Þetta er hreinlega eitthvað sem við höfum ekkert pælt í undanfarið ár." freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið Eitt myndband selji upp heilu lagerana Menning Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Lífið Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Lífið „Sterklega orðaður“ við Bond og efstur hjá veðbönkum Bíó og sjónvarp Dorrit sendir rabbínanum tóninn Lífið Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Lífið Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Lífið Robbie Williams einhverfur Lífið Elti draumana til London og tók sjálfa sig í sátt Tónlist Vinsælasta ABBA-sýning heims í Hörpu og Hofi Lífið samstarf Fleiri fréttir Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Ocasio-Cortez á lausu Frægustu mágar landsins Office-stjarna með ólæknandi krabbamein Pálmi Kormákur og Guðrún nýtt par Selja útsýnishús með saunu og sjóvatnspotti Usher þvertekur fyrir klónið „Það er engin skömm í krabbameininu“ Dottinn í það á ný: „Ég var edrú í sjö ár“ Einstakt einbýlishús á 235 milljónir í Garðabæ Gugga á Þjóðhátíð: „Er þetta leigubíll? Nei, þetta er pó-pó“ Urður yfirgefur Kastljós Sjá meira