Innlent

Hraunfossinn í Hrunagili er storknaður

MYND/Anton Brink

Hraun er nú hætt að renna niður Hrunagil í eftir að hraunrennslið úr eldstöðinni á Fimmvörðuhálsi fór að renna í vestur og niður í Hvannárgil. Þetta hefur fréttastofa eftir jarðfræðingi sem staddur er á svæðinu.

Hraunfossinn tilkomumikli sem steypst hefur niður í Hrunagil er því storknaður, í bili að minnsta kosti.

Mikill fjöldi fólks er nú staddur á svæðinu til þess að virða fyrir sér náttúruundrin.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×