Innlent

Sjúkraliðar skora á heilbrigðisráðherra

Frá fundinum í gær.
Frá fundinum í gær.

Sjúkraliðar á Heilbrigðisstofnun Suðurlands skora á heilbrigðisráðherra að ganga fram fyrir skjöldu og krefjast þess að stjórnendur virði starfssvið og réttindi sjúkraliða.

Starfsmennirnir héldu fjölmennan fund í gær og þar var hörðum mótmælum hreyft við því að lög og reglugerð um sjúkraliða séu ekki virt. „Fundur sjúkraliða á HSu skorar á heilbrigðisráðherra að ganga fram fyrir skjöldu og krefja heilbrigðisstofnunina um að lögbundið starfssvið og starfsréttindi sjúkraliða verði virt," segir í ályktuninni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×