Leitarleyfi á Drekasvæðinu laus til umsóknar 3. febrúar 2010 19:01
Íslensk stjórnvöld hafa opnað á ný fyrir umsóknir um fimm leyfi til olíuleitar á Drekasvæðinu en jafnframt hafið undirbúning nýs alþjóðlegs útboðs á næsta ári.Drekaútboðið hófst í janúar í fyrra og var fyrsta olíuleitarútboð Íslendinga. Fimm leyfi voru boðin út. Þegar umsóknarfrestur rann út í maí kom í ljós að tvær umsóknir höfðu borist en svo fór að þær voru báðar dregnar til baka. Samkvæmt skilmálum útboðsins er heimilt að hafa þau leitarleyfi sem ekki gengu út áfram til ráðstöfunar.Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra segir að það sú nú opið fyrir þá sem vilji sækja um að koma umsóknum til Orkustofnunar. Þær verði síðan metnar faglega. Síðan sé ætlunin að fara aftur í útboð á næsta ári.Í millitíðinni hefur það gerst að norski olíumálaráðherrann fór í táknræna heimsókn til Jan Mayen síðastliðið haust til að marka fyrsta skref í olíuleit Noregsmegin á hryggnum.Í ljósi þess að íslenska olíuskattalöggjöfin var gefin upp sem ein helsta ástæða þess að umsækjendur drógu sig til baka má spyrja hvort til nokkurs sé að halda áfram nema breyta sköttunum. Iðnaðarráðherra segir að það verði skoðað með hliðsjón af því hvernig Norðmenn ætla að skattleggja svæðið sín megin. Það sé engum dyrum lokað í því."Við ætlum að vera samkeppnishæf. En við ætlum engu að síður að verðleggja okkar auðlindir hátt," segir Katrín.
Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Erlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Erlent Berserksgangur á gististað Innlent Fleiri fréttir Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Sjá meira