Segir Eið Smára víst hafa átt í ástarsambandi við Vanessu 4. febrúar 2010 09:21 Skjáskot af frétt The Sun.
Leigusali Vanessu Perconell, sem er sökuð um að hafa sængað hjá rúmlega hálfu fótboltaliði Chelsea, segir í viðtali við The Sun í dag að hún hefði margsinnis séð Eið Smára heima hjá Vanessu árið 2003. Bæði Eiður Smári og Vanessa hafa þvertekið fyrir að hafa átt í ástarsambandi. Ekki fór á milli mála að sögn leigusalans, sem heitir Linda Wardley, hvað þau voru að gera. Af hljóðunum að dæma lætur Linda hafa það eftir sér í The Sun að Eiður hafi virst heldur orkumikill. Svo á hann að hafa læðst út klukkan fimm á morgnanna. Vanessa, sem er frönsk undirfatafyrirsæta, komst fyrst í fréttirnar í Bretlandi fyrir nokkrum dögum þegar í ljós kom að hún hafði sofið hjá John Terry, liðsmanni Chelsea og fyrirliða breska landsliðsins. Á sama tíma var hún á föstu með liðsfélaga Terrys í Chelsea, Wayne Bridge. Málið náði svo nýjum hæðum þegar í ljós kom að Vanessa hefði orðið ólétt eftir John og hann borgaði fyrir fóstureyðingu hennar. Það var svo í gær sem The Sun greindi frá því að Eiður hefði einnig sofið hjá Vanessu auk annarra liðsmanna og fyrrum liðsmanna Chelsea. Sjálfur neitaði Eiður ásökununum í blaðinu í gær. Nú hefur Linda stigið fram, auk þess að vera leigusali Vanessu þá átti hún í talsverðum samskiptum við hana. Hún fullyrðir að Vanessa hafi sagt við sig að Eiður hefði lofað að yfirgefa konu sína og þrjú börn fyrir Vanessu. Hann hafi aftur á móti óttast að missa börnin sín í kjölfarið að sögn Lindu. Linda gefur svo Vanessu heldur lága einkun fyrir framkomu sína gagnvart karlkyninu. Meðal annars sakar hún Vanessu um að hafa notað Wayne miskunnarlaust til þess eins og að viðhalda glæsilegum lífstíl sem henni sjálfri þótti sæma sér. Að sögn Lindu var það eina takmark Vanessu að finna sér stæltan og ríkan fótboltamann sem gæti haldið henni uppi. Hægt er að lesa greinina í heild sinni hér.
Tengdar fréttir Capello tekur ákvörðun um John Terry Enska knattspyrnusambandið hefur gefið það út að það sé í höndum landsliðsþjálfarans, Fabio Capello, hvað verði um John Terry. 1. febrúar 2010 23:00 Landsliðsfyrirliðinn barnaði kærustu samherja síns John Terry, fyrirliði enska landsliðsins og Chelsea, gerði Vanessu Perroncel kærustu Wayne Bridge, liðsfélaga síns í Chelsea og landsliðinu, ólétta. Greint er frá málinu á vef News of the World í dag en Terry reyndi að fá lögbann á birtingu fréttar um málið í breskum fjölmiðlum. Á þá beiðni féllust þarlendir dómstólar ekki. Talið er að málið eigi eftir að draga dilk á eftir sér fyrir landsliðsfyrirliðann. 31. janúar 2010 13:03 Eiður Smári neitar ásökunum um framhjáhald Eiður Smári Guðjohnsen neitar að hafa átt í ástarsambandi við Vanessu Perroncel árið 2003 en enska dagblaðið The Sun fjallar ítarlega um meint framhjáhald hans í dag. 3. febrúar 2010 11:55 Vanessa neitar að hafa átt í ástarsambandi við Eið Smára Fótboltafrúin Vanessa Perroncell hefur neitað ásökunum um að hafa sofið hjá Eiði Smára Guðjohnsen í blaðinu The London Evening Standard en það var upplýsingafulltrúinn hennar, Max Clifford sem talaði við blaðið. 3. febrúar 2010 14:29 Mest lesið Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Innlent „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Innlent „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ Innlent Eldur í Bryggjuhverfi Innlent Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Innlent Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Innlent Lést er hún fagnaði sigri Frakka Erlent Tólf látnir í skógareldum í suðurhluta Spánar Erlent Óttast að færri leiti sér aðstoðar Innlent Fleiri fréttir Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ „Við skulum ekki láta grípa okkur með buxurnar á hælunum þetta árið“ Ungir síbrotamenn, eldur í Bryggjuhverfinu og andstæður í veðrinu „Við skírðum hana Halla Sykurvatn Tómatsósudóttir“ Eldur í Bryggjuhverfi Jarðböðin við Mývatn opin á nýjan leik „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Vegagerðin varar við vindi Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Lögreglan þekkti óprúttna aðila á upptökum Krafa Íslands um undanþágur vekur spurningar í ESB Segir skoðanir Ólafs Ragnars ekkert ofboðslega fréttnæmar Sjá meira
Capello tekur ákvörðun um John Terry Enska knattspyrnusambandið hefur gefið það út að það sé í höndum landsliðsþjálfarans, Fabio Capello, hvað verði um John Terry. 1. febrúar 2010 23:00
Landsliðsfyrirliðinn barnaði kærustu samherja síns John Terry, fyrirliði enska landsliðsins og Chelsea, gerði Vanessu Perroncel kærustu Wayne Bridge, liðsfélaga síns í Chelsea og landsliðinu, ólétta. Greint er frá málinu á vef News of the World í dag en Terry reyndi að fá lögbann á birtingu fréttar um málið í breskum fjölmiðlum. Á þá beiðni féllust þarlendir dómstólar ekki. Talið er að málið eigi eftir að draga dilk á eftir sér fyrir landsliðsfyrirliðann. 31. janúar 2010 13:03
Eiður Smári neitar ásökunum um framhjáhald Eiður Smári Guðjohnsen neitar að hafa átt í ástarsambandi við Vanessu Perroncel árið 2003 en enska dagblaðið The Sun fjallar ítarlega um meint framhjáhald hans í dag. 3. febrúar 2010 11:55
Vanessa neitar að hafa átt í ástarsambandi við Eið Smára Fótboltafrúin Vanessa Perroncell hefur neitað ásökunum um að hafa sofið hjá Eiði Smára Guðjohnsen í blaðinu The London Evening Standard en það var upplýsingafulltrúinn hennar, Max Clifford sem talaði við blaðið. 3. febrúar 2010 14:29