Innlent

Bílaumferð er minni en áður

Bílaumferð um Suðurland hefur dregist saman frá því í fyrra.
Bílaumferð um Suðurland hefur dregist saman frá því í fyrra.
Talsvert minni bílaumferð var nú í janúar en janúar í fyrra. Þetta kemur fram á heimasíðu Vegagerðarinnar. Þar segir að á sextán talningarstöðum við hringveginn hafi umferðin minnkað um þrjú prósent.

„Mest dróst umferðin saman á Suðurlandi en hún jókst hins vegar á Norður- og Austurlandi,“ segir Vegagerðin sem kveður umferðina í janúar fram að þessu hafa aukist frá ári til árs þar nú. Umferðin á Suðurlandi minnkaði um 5,6 prósent og á höfuðborgarsvæðinu um 3,5 prósent. Á Norðurlandi jókst umferð um 4,0 prósent og á Austurlandi um 1,3 prósent. - gar



Fleiri fréttir

Sjá meira


×