Kjósa um sameiningu um helgina 19. mars 2010 03:00
Íbúar Hörgárbyggðar og Arnarneshrepps í Eyjafirði kjósa á laugardag um hvort sameina skuli sveitarfélögin tvö. Alls búa 606 manns í sveitarfélögunum. Í Hörgárbyggð 429, en 177 í Arnarneshreppi. Guðmundur Sigvaldason, bæjarstjóri í Hörgárbyggð, býst við því að sameiningin verði samþykkt: „Við teljum að með sameiningu verði hægt að efla samfélagið og auka möguleika þess til að takast á við ýmis stærri verkefni." Sveitarfélögin tvö starfa nú þegar saman „um flesta hluti", að sögn Guðmundar, svo sem við rekstur skóla og íþróttamannvirkja. „Þetta snýst því bara um að þróa það áfram," segir Guðmundur. Fjárhagslega standi sveitarfélögin tvö ágætlega, en í yfirstandandi þrengingum efnahagslífsins sé betra að hafa borð fyrir báru. „Tekjur sveitarfélaga almennt eru að minnka en um leið eru gerðar kröfur um sömu þjónustu. Þetta er fyrirbyggjandi aðgerð frekar en annað, til að geta brugðist betur við sveiflum þegar þær koma," segir sveitarstjórinn. Beinn fjárhagslegur ávinningur af sameiningu sveitarfélaganna nemur um fjórtán milljónum króna á ári, þar af sex milljónir sem fást úr auknum framlögum Jöfnunarsjóðs sveitarfélaganna. Þá fást allt að 36 milljónir úr sama sjóði til að standa straum af kostnaði við sameininguna. Samþykki íbúarnir sameiningaráformin má gera ráð fyrir að þau gangi í gegn í kjölfar sveitarstjórnarkosninganna 29. maí. Í þeim kosningum yrði enn fremur kosið um nafn á sveitarfélagið nýja. - kóþ
Mest lesið Uggur í ferðaþjónustu fyrir vestan: „Sjö afbókanir í nótt, fjórar á morgun“ Innlent Eiginmaðurinn fékk krabbameinið sem hún hræddist mest Innlent Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Innlent Rússar vígbúast við mörk Norðurlanda Erlent Fjölskyldur hafi þegar hætt við að flytja aftur til Grindavíkur Innlent Marius sleppur ekki eftir allt saman Erlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent Tóku ákvörðun um að skrá fólk úr flokknum Innlent Grikki með tugi kílóa kókaíns undir fölsku gólfi Innlent Tryggvi Gíslason er látinn Innlent Fleiri fréttir Mál Steinu fer fyrir Hæstarétt Sofandi á akbraut Heitavatnslaust í miðborg í kvöld Enn bólar ekkert á fleiri ákærum vegna netverslunar Framkvæmdir við Hvammsvirkjun í vari út árið Almenningur ekki talinn eiga rétt á upplýsingum um ETS-sérlausn Barn réðst með belti á önnur börn Hæstiréttur hafnar beiðni Elju um að taka fyrir meiðyrðamál Virkjunarleyfi vegna Hvammsvirkjunar fær grænt ljós Tóku ákvörðun um að skrá fólk úr flokknum Eiginmaðurinn fékk krabbameinið sem hún hræddist mest Ferðum Íslendinga til útlanda fækkar Hvetur almenning til að vera á varðbergi Náttúruminjasafn og Náttúrufræðistofnun renna saman Uggur í ferðaþjónustu fyrir vestan: „Sjö afbókanir í nótt, fjórar á morgun“ Ríkisstjórnin beri ábyrgð á hindrunum Þórkötlu Óviðunandi að ákveðnir hópar barna búi enn við svo mikið úrræðaleysi Nýttu takmarkanir á sjúkraflugi til að þrýsta á borgina Ósáttir Grindvíkingar og undirbúningur fyrir þjóðaratkvæði að komast á fullt Fleiri andvígir inngöngu í ESB Þorsteinn Ólafsson er látinn Grikki með tugi kílóa kókaíns undir fölsku gólfi Starfsleyfi takmarkað vegna lyfjaávísana Leiðtogaskipti hjá Sósíalistaflokknum Bein útsending: Ræða öryggis- og stjórnmálasamstarf á Eystrasaltssvæðinu Fjölskyldur hafi þegar hætt við að flytja aftur til Grindavíkur Eldhúsdagur runninn upp Fræsa og malbika Reykjanesbraut við Smáralind í kvöld Tryggvi Gíslason er látinn Öskur, reykelsisfnykur, greiðslufall og gámarót Sjá meira