Innlent

Varað við að senda greiðslur til Íslands

Fyrirtæki í Taívan, sem nýverið keypti hunda- og kattamat frá Murr ehf í Súðavík, var varað við að senda greiðslur til Íslands fyrir sendinguna, þar sem íslenskir bankar væru á hausnum og því væri ekki víst að seljandinn fengi greiðsluna.

Þorleifur Ágústsson, framkvæmdastjóri Murr, segir í viðtali við fréttavefinn BB að tengiliður fyrirtækisins í Taívan telji líklegt að þessi viðbrögð megi rekja til aðgerða Breta gegn íslenskum bönkum, og þá væntanlega hryðjuverkalaganna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×