Varnarmálastofnun lokað um áramót 30. mars 2010 21:33 Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra.
Varnarmálastofnun verður lögð niður 1. janúar næstkomandi verði boðað frumvarp ríkisstjórnarinnar samþykkt. Ríkisstjórnin samþykkti í dag að leggja fram frumvarp til laga um breytingu á varnarmálalögum nr. 34/2008 í samræmi við niðurstöður í skýrslu starfshóps fimm ráðuneyta, sem skipaður var í desember að tillögu utanríkisráðherra. „Starfshópurinn var settur á laggirnar til að gera tillögur um hvernig mætti framfylgja ákvörðun ríkisstjórnarinnar um að leggja niður Varnarmálastofnun á þessu ári og samþætta verkefni hennar hlutverki annarra opinberra stofnana. Skýrt var tekið fram að Ísland stæði áfram við allar varnar- og öryggistengdar skuldbindingar sínar og að forræði á utanríkispólitískum þáttum yrði áfram hjá utanríkisráðherra," segir í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu. Í skýrslunni er bent á leiðir til að núverandi starfsþættir Varnarmálastofnunar verði hluti af nýrri borgaralegri stofnun, sem sæi um öryggis- og varnarmál á grundvelli borgaralegra gilda innan áformaðs innanríkisráðuneytis, en auk þess gerðar tillögur um hvernig þeir rúmast innan skyldra stofnana uns nýtt ráðuneyti kemst á fót. „Í skýrslunni er lagt til, að ríkisstjórnin leggi fram frumvarp að breytingum á varnarmálalögum þar sem Varnarmálastofnun verði formlega lögð niður 1. janúar 2011. Í frumvarpi utanríkisráðherra er gert ráð fyrir að við lögfestingu taki til starfa sérstök breytingastjórn, skipuð fulltrúum ráðuneytanna fimm, sem stýri ráðstöfun einstakra verkefna til þeirra stofnana sem næst þeim standa. Starfshópurinn gerir ítarlega grein fyrir því í skýrslunni hvernig finna má þeim stað hjá Landhelgisgæslunni, Ríkislögreglustjóra, Fasteignum ríkissjóðs og utanríkisráðuneytinu auk þess sem bent er á mikilvægar leiðir til að útvista með þjónustusamningum tilteknum verkefnum." Þá segir ennfremur að í frumvarpinu sé meðal annars mælt fyrir um nýtt ákvæði um verksamninga, sem byggt er á fyrirmynd fjárreiðulaganna. „Samkvæmt því yrði utanríkisráðherra veitt heimild til að gera við aðrar ríkisstofnanir verksamninga og samninga um rekstrarverkefni, sem undir lögin falla. Með ákvæðinu er gert kleift að flytja einstök verkefni Varnarmálastofnunar til undirstofnana þeirra ráðuneyta sem síðar munu mynda nýtt innanríkisráðuneyti. Í frumvarpinu er jafnframt ákvæði sem tryggir að starfsfólki stofnunarinnar verði boðið starf hjá þeim ríkisstofnunum sem taka við verkefnum Varnarmálastofnunar."
Mest lesið „Þeir eru að gera svona hluti sem maður myndi bara sjá í bíómyndum“ Innlent Tenerife-veður víða á landinu Innlent „Langþreytt á að það séu boðaðir fundir þegar eitthvað kemur upp á“ Innlent Mótmæla heimsókn Ursulu von der Leyen Innlent Greindist með MND 27 ára: „Lífið er of stutt til að vera neikvæður“ Innlent Trump segir Pútín hafa komið sér á óvart Erlent „Tæknivilla“ hafi valdið árás á fólk sem var að sækja sér vatn Erlent Fagna áttatíu ára afmæli millilandaflugs Íslendinga Innlent Segjast hafa „útrýmt“ banamönnum ofurstans Erlent „Raunhæfur möguleiki“ að hitamet falli á morgun Veður Fleiri fréttir Tenerife-veður víða á landinu Þrjú mál á dagskrá á síðasta þingfundinum „Þeir eru að gera svona hluti sem maður myndi bara sjá í bíómyndum“ Fagna áttatíu ára afmæli millilandaflugs Íslendinga Mótmæla heimsókn Ursulu von der Leyen „Langþreytt á að það séu boðaðir fundir þegar eitthvað kemur upp á“ Leita logandi ljósi af nýju svæði undir kirkjugarð á Selfossi Greindist með MND 27 ára: „Lífið er of stutt til að vera neikvæður“ Barátta við illvígan sjúkdóm, furðuleg uppátæki fanga og svakalegar hitatölur Maðurinn sem var stunginn í Mjóddinni liggur enn þungt haldinn Gámurinn á bak og burt Velti bílnum út í sjó í Súgandafirði „Eini rasisminn sem ég hef upplifað á Íslandi er frá lögreglunni“ Tókust á um veiðigjöld og þinglok Gámur á akrein hringtorgs í Hveragerði Þurfi að bæta skráningu ofbeldisbrota gegn fangavörðum Ursula von der Leyen kemur til Íslands Formenn takast á, fangelsismál og Trump á völlinn Ekki farið fram á gæsluvarðhald yfir fimmmenningunum Ingi Garðar er Reykvíkingur ársins Kallaði Kristrúnu „Trump okkar Íslendinga“ Kristrún og Guðrún mætast í Sprengisandi Flestir ánægðir með Kristrúnu en fæstir Ingu Fundu kannabisplöntur við húsleit Dettifoss komið til hafnar Mörg hundruð börn hittist og drekki sig full í sumarpartýum Ofbeldi í garð fangavarða eykst Hnífstungumaður úrskurðaður í gæsluvarðhald Fjögur mál kláruð fyrir þingslit: „Skynsamleg lúkning sem forseti leggur til“ Þinglokasamningur í höfn Sjá meira