Páskaeggin brotnuðu öll á leið til Danmerkur Jón Hákon Halldórsson skrifar 30. mars 2010 14:01 Eggin voru öll í molum þegar þau skiluðu sér á leiðarenda.
Íslenskur afi sem ætlaði að senda páskaegg til barnabarna sinna í Danmörku segir farir sínar ekki sléttar í samskiptum við danska póstinn. Hann sendi átta páskaegg til Esbjerg í Danmörku í síðustu viku en þegar þau komust á leiðarenda voru þau öll brotin nema eitt. „Þetta var ekkert voða lengi á leiðinni. Ég keypti páskaegg fyrir svona um 20 þúsund. Ég keypti átta egg númer sjö og eitt númer fjögur," segir Hannes Halldórsson, sem sendi eggin til Danmerkur. Hann segir að tollurinn hafi skilið minnsta eggið eftir óbrotið en hin hafi verið mölvuð. „Þeim fannst nú ekki taka því að stúta því en þeir stútuðu hinum snyrtilega," segir Hannes. Þeir hafi stútað botni og öllu saman með hnefunum. „Þeir hafa verið að leita að eiturlyfjum eða einhverju slíku, en við eigum enga sögu um slíkt," segir Hannes. Hannes segir að sér finnist skrýtið að tollurinn hafi ekki einhverja betri tækni til að leita að fíkniefnum, með gegnumlýsingartæki eða öðru slíku. Hannes segir að pósturinn hafi lýst sig ábyrgan fyrir sendingunni þannig að fjölskyldan mun ekki sitja eftir slipp og snauð þó hún verði með brotin egg.
Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Erlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent Marius látinn laus Erlent „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Innlent Fleiri fréttir „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi Sjá meira