Innlent

Slösuðust í bílveltu í Hamarsfirði

Tveir erlendir ferðamenn slösuðust, en þó ekki alvarlega, þegar jepplingur þeirra valt í Hamarsfirði skammt frá Höfn í Hornafirði í gærkvöldi. Gert var að meiðslum þeirra á heilsugæslustöðinni á Höfn og gistu þeir á Höfn í nótt. Tildrög slyssins liggja ekki fyrir en hálka var á veginum og gekk á með snörpum vindhviðum.-




Fleiri fréttir

Sjá meira


×