Erlend bílalán gætu lækkað um 40 prósent 30. mars 2010 04:00 Stór hluti bílalána landsmanna er tengdur gengi erlendra gjaldmiðla að hluta eða öllu leyti. Lán tryggð í jenum og svissneskum frönkum hafa hækkað mest frá hruninu haustið 2008. Fréttablaðið/Pjetur
Höfuðstóll bílalána, sem tekin voru í jenum og svissneskum frönkum síðla árs 2007, mun lækka um 36 til 38 prósent fallist eignaleigufyrirtæki á tillögur félagsmálaráðuneytisins um að færa erlend bílalán yfir í íslenskar krónur með 15 prósenta álagi á upphaflegan höfuðstól. 1,8 milljóna bílalán, sem tekið var í ágúst 2007 og tryggt í jenum og frönkum, stendur nú í rúmlega 3,1 milljón króna. Afborgun er um 62.000 krónur á mánuði. Í töflunni er tekið dæmi um slíkt lán sem tekið var til að greiða 81 prósent kaupverðs á Toyota Aygo smábíl. Viðmiðunarmarkaðsverð bílsins er nú um 2,3 milljónir. Miðað við yfirfærslu í verðtryggt lán með 15 prósenta álagi á höfuðstól færðist lánið niður í tvær milljónir króna, sem er 36 prósenta lækkun. Eigandinn ætti þá 318.000 króna afgang, seldist bíllinn á viðmiðunarverði, í stað þess að skulda 843.000 krónur eftir sölu bílsins. Afborgun mundi lækka úr 62.000 krónum í um 44.000 krónur, eða um 18.000 krónur, en gæti lækkað enn frekar eða í 29 til 37 þúsund krónur á mánuði ef lántaki nýtir möguleika á að lengja lánstímann. 6,2 milljóna lán, tekið í jenum og frönkum í desember 2007 til að kaupa Range Rover fyrir 7,5 milljónir króna, stendur nú í 9,9 milljónum. Miðað við flutning í verðtryggt lán með 15 prósenta álagi myndi það skrifast niður um 3,8 milljónir og standa í 6,1 milljón. Viðmiðunarverð bílsins er í dag 6,3 milljónir. Veðsetningarhlutfallið, sem nú er 157 prósent af viðmiðunarverði, færi niður í 97 prósent af viðmiðunarverði. Samkvæmt upplýsingum úr félagsmálaráðuneytinu eru um 49 þúsund heimili í landinu með bílalán og um 90 prósent þeirra eru gengistryggð. Á bilinu 70 til 80 prósent þeirra voru tekin á árunum 2006 og 2007 þegar gengi krónunnar var sterkast. Í meðfylgjandi dæmum er miðað við lán í jenum og frönkum. Þau lán hafa hækkað mest í kjölfar hrunsins. Eldri lán og lán, sem eru í öðrum myntum, hafa ekki ekki tekið jafnmiklum breytingum. Í slíkum tilvikum fer lækkun eftirstöðva, við flutning yfir í verðtryggð krónulán, niður fyrir 20 prósent. Miðað við lán, sem tekið var í febrúar 2005 og var að hálfu verðtryggt en að hálfu tryggt með myntkörfu, er lækkun á eftirstöðvum um 21 prósent. peturg@frettabladid.is
Mest lesið Ekki jákvætt þegar lögregla tekur af manni launin Innlent Sneri sér við, greip í spaðann á Kristrúnu og gekk út Innlent Skemmdarvargar máluðu yfir regnbogafánann Innlent „Líkist meira fána Grænhöfðaeyja heldur en þeim íslenska“ Innlent Lentu í slysi á flugbraut í Kirgistan: „Börn farin að gráta og fullorðnir farnir að öskra“ Innlent Sníkjudýrsaðferðin komin til Íslands: Hvers vegna var efnunum komið fyrir í sjókistu? Innlent Kominn með nóg af áfengisauglýsingum áhrifavalda Innlent Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Innlent Lögreglan leitar þessara manna Innlent Kristrún um Trump: „Það er hlýtt á milli okkar“ Innlent Fleiri fréttir Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Rússneska herskipið aftur innan lögsögunnar Jón Ingvar vildi níutíu milljónir en fær ekki krónu Kristrún um Trump: „Það er hlýtt á milli okkar“ Ríkisútvarpið braut ekki gegn siðareglum Trump, hóteldeilur og VestFest í kvöldfréttum Evrópusambandið sé verkfæri til að ná stöðugleika Stjórnandi drónans taldi sér ógnað og byssumaðurinn dæmdur Aukin framlög til varnarmála og öflugur stuðningur við Úkraínu á leiðtogafundi NATO Talið að tveir hafi staðið að meintum hatursglæp Gæsluvarðhald framlengt í Straumsvíkurmálinu Lögreglan leitar þessara manna Ísland skari fram úr ESB á flestum mælikvörðum Rannsaka málið sem hatursglæp Sneri sér við, greip í spaðann á Kristrúnu og gekk út Eldsvoði á Siglufirði nam þriðjungi bættra tjóna Ekki jákvætt þegar lögregla tekur af manni launin Fara áfram fram á varðhald yfir öllum níu Fær mál vegna sáðláts í andlit ekki tekið upp á ný Raforkueftirlitið fylgist með að lægri raforkukostnaður skili sér til neytenda Spenna á ráðstefnu NATO, raforkukostnaður og biskup um regnbogafánann „Líkist meira fána Grænhöfðaeyja heldur en þeim íslenska“ Lokuð akrein á Suðurlandsvegi og kvikmyndatökur á Krýsuvíkurleið Ummæli Trump um Grænland þurfi ekki að koma á óvart Skemmdarvargar máluðu yfir regnbogafánann Bjóða 250 þúsund krónur fyrir staðsetningu hvalveiðiskipanna Sníkjudýrsaðferðin komin til Íslands: Hvers vegna var efnunum komið fyrir í sjókistu? Hættuástand skapist eftir fráhvarf 3G „Hugsið ykkur hvað þetta er nöturleg afmælisgjöf“ Hiti gæti náð tuttugu og fimm stigum um helgina Sjá meira