Ísfélagið bíður eftir svörum frá Chile 30. mars 2010 03:15 Skipin eru hönnuð af Rolls Royce í Noregi. Þau eru 71,1 metri að lengd og burðargeta er rúmlega tvö þúsund tonn í tíu kælitönkum. Skipin eru útbúin til nóta- og flottrollsveiða.mynd/héðinn hf.
Enn ríkir óvissa um afgreiðslu skipasmíðastöðvarinnar ASMAR í Chile á tveimur öflugum skipum til Ísfélagsins í Vestmannaeyjum. Stöðin stórskemmdist í jarðskjálfta 27. febrúar. Forsvarsmenn ASMAR halda því fram að þeir séu ekki bundnir af smíðasamningum skipanna þar sem fyrirsjáanlegar vanefndir á afhendingu skipanna eru til komnar vegna náttúruhamfara. „Skipasmíðastöðin ber fyrir sig „force majeure“-ákvæðinu í samningnum og þar stendur málið núna,“ segir Stefán Friðriksson, framkvæmdastjóri Ísfélagsins. „Satt best að segja vitum við ekki hvert framhaldið verður og bíðum svara að utan um hvað þeir ætla að gera. Mér skilst að þeir ætli að klára nýja varðskipið Landhelgisgæslunnar, svo það sama getur átt við um okkar skip.“ Stefán segir ljóst að fyrirtækið verði ekki fyrir fjárhagslegu tjóni vegna tafa eða skemmda. Ísfélagið hefur ekki samið um sölu á öðrum skipum fyrirtækisins vegna endurnýjunar skipakostsins. Þess vegna muni framvinda málsins, hver sem hún verður, ekki hafa nein áhrif á rekstur Ísfélagsins. Kaupverð skipanna tveggja var um fjórir milljarðar króna við undirskrift, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Gengisþróun eftir hrun hefur nær tvöfaldað þá upphæð. Ísfélagið hefur þegar greitt kaupverð skipanna að hluta. Smíði annars skipsins er langt komin og var það væntanlegt til landsins seint á þessu ári. Áætlað var að seinna skipið kæmi til landsins fyrri hluta árs 2011. Ef tafir verða fram úr hófi er ein af mögulegum leiðum Ísfélagsins að segja sig frá samningnum. „Við vonum hins vegar að þeir komist af stað og ljúki smíði skipanna,“ segir Stefán og bætir við að vel komi til greina að selja annað skipið vegna þeirra hækkana sem gengisþróun síðustu mánaða hefur valdið. Björgvin Ólafsson, framkvæmdastjóri BP-skipa hf., sem er umboðsaðili ASMAR á Íslandi, segir að verið sé að meta skemmdirnar í stöðinni, sem hafi verið gríðarlegar. Hann telur meiri líkur en minni á því að íslensku skipin verði kláruð í stöðinni. svavar@frettabladid.is
Mest lesið Hótar að svipta Rosie O'Donnell ríkisborgararétti Erlent Nafn mannsins sem lést í mótorhjólaslysinu Innlent Mörg hundruð börn hittist og drekki sig full í sumarpartýum Innlent Greindist með MND 27 ára: „Lífið er of stutt til að vera neikvæður“ Innlent „Eini rasisminn sem ég hef upplifað á Íslandi er frá lögreglunni“ Innlent Fimm handteknir eftir að skoti var hleypt af Innlent Gámur á akrein hringtorgs í Hveragerði Innlent Þungt haldinn eftir árekstur á Hafnarfjarðarvegi Innlent „Kom hvergi nærri samræði hans við barnunga stúlkuna“ Innlent Tókust á um veiðigjöld og þinglok Innlent Fleiri fréttir Fagna áttatíu ára afmæli millilandaflugs Íslendinga Mótmæla heimsókn Ursulu von der Leyen „Langþreytt á að það séu boðaðir fundir þegar eitthvað kemur upp á“ Leita logandi ljósi af nýju svæði undir kirkjugarð á Selfossi Greindist með MND 27 ára: „Lífið er of stutt til að vera neikvæður“ Barátta við illvígan sjúkdóm, furðuleg uppátæki fanga og svakalegar hitatölur Maðurinn sem var stunginn í Mjóddinni liggur enn þungt haldinn Gámurinn á bak og burt Velti bílnum út í sjó í Súgandafirði „Eini rasisminn sem ég hef upplifað á Íslandi er frá lögreglunni“ Tókust á um veiðigjöld og þinglok Gámur á akrein hringtorgs í Hveragerði Þurfi að bæta skráningu ofbeldisbrota gegn fangavörðum Ursula von der Leyen kemur til Íslands Formenn takast á, fangelsismál og Trump á völlinn Ekki farið fram á gæsluvarðhald yfir fimmmenningunum Ingi Garðar er Reykvíkingur ársins Kallaði Kristrúnu „Trump okkar Íslendinga“ Kristrún og Guðrún mætast í Sprengisandi Flestir ánægðir með Kristrúnu en fæstir Ingu Fundu kannabisplöntur við húsleit Dettifoss komið til hafnar Mörg hundruð börn hittist og drekki sig full í sumarpartýum Ofbeldi í garð fangavarða eykst Hnífstungumaður úrskurðaður í gæsluvarðhald Fjögur mál kláruð fyrir þingslit: „Skynsamleg lúkning sem forseti leggur til“ Þinglokasamningur í höfn Þingfundi slitið eftir ítrekaðar frestanir og snörp orðaskipti Eldfimt ástand á þingi, árásir á fangaverði og full ungmenni á víðavangi Segir enga sérstaka ástæðu fyrir áhuga á 71. greininni Sjá meira