Innlent

Flug með eðlilegum hætti

Mynd/Teitur Jónasson

Flug verður með eðlilegum hætti í dag, þar sem flugumferðarstjórar aflýstu verkfallsaðgerðum eftir að þeir fengu fyrirheit um það að samningamenn Flugstoða hefðu örugglega umboð til samningsgerðar.

Búið var að boða til þingfundar í gærkvöldi þar sem til stóð að setja bráðabirgðalög á verkfallsaðgerðir þeirra, þegar yfirlýsing barst frá flugumferðarstjórunum, og verða samningaviðræður teknar upp að nýju í dag. Ef þær bera ekki árangur, hefjast aðgerðir aftur 17. og 19. mars.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×