Steingrímur Hermannsson látinn 1. febrúar 2010 15:26
Steingrímur Hermannsson fyrrverandi forsætisráðherra Íslands er látinn á 82. aldursári. Hann lést á heimili sínu í Garðabæ í morgun. Greint er frá þessu á vefsíðu Framsóknarflokksins. Steingrímur Hermannsson fæddist í Reykjavík 22. júní 1928. Foreldrar hans voru Hermann Jónasson alþingsmaður og ráðherra og kona hans Vigdís Oddný Steingrímsdóttir húsmóðir. Eftirlifandi kona Steingríms er Edda Guðmundsdóttir. Saman áttu þau börnin Hermann Ölvi, Hlíf og Guðmund. Steingrímur eignaðist þrjú börn með fyrri konu sinni. Þau heita Jón Bryan, Ellen Herdísi og Neil. Steingrímur lauk stúdentspróf frá MR 1948, B.Sc.-próf í rafmagnsverkfræði frá Illinois Institute of Technology í Chicago 1951 og M.Sc.-próf frá California Institute of Technology í Pasadena 1952. Hann þótti liðtækur í grískri glímu á námsárum sínum í Bandaríkjunum og hlaut þar auknefnið „Big Red". Eftir að námu lauk starfaði Steingrímur sem verkfræðingur hjá Rafmagnsveitu Reykjavíkur 1952—1953 og hjá Áburðarverksmiðjunni hf. 1953—1954. Hann átti sæti í varnarmálanefnd og var verkfræðilegur ráðunautur utanríkisráðherra varðandi Keflavíkurflugvöll 1954. Steingrímur starfaði um tíma sem verkfræðingur við Southern California Edison Company í Los Angeles 1955—1956. Varð hann síðar verkfræðingur við Verklegar framkvæmdir hf. 1957 og framkvæmdastjóri Rannsóknaráðs ríkisins 1957—1978. Steingrímur hóf snemma afskipti af stjórnmálum og var kosinn á þing fyrir Framsóknarflokkinn árið 1971. Starfaði hann sem þingmaður og ráðherra allt fram til ársins 1994. Hann varð formaður flokksins frá 1979 til 1994. Hann varð dóms- og kirkjumála- og landbúnaðarráðherra árið 1978 og gengdi ýmsum ráðherraembættum þar til hann varð forsætisráðherra 1983. Hann varð aftur forsætisráðherra árið 1988 fram til 1991. Steingrímur lauk opinberum ferli sínum sem bankastjóri við Seðlabanka Íslands en hann var fyrst ráðinn í þá stöðu 1994 og gengdi henni til 1998.
Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Innlent Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Innlent Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Innlent Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Erlent Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Fleiri fréttir Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Sjá meira