Innlent

Vinnur með Gylfa og Megasi

rúnar þór pétursson
rúnar þór pétursson
„Ég gæti trúað að þetta verði sérstakt, að hlusta á gömlu sukkarana taka lagið saman,“ segir Rúnar Þór Pétursson, sem kemur í fyrsta sinn fram á tónlistarhátíðinni Aldrei fór ég suður í heimabænum Ísafirði í kvöld. Rúnar Þór vinnur þessa dagana að breiðskífu með sjálfum Megasi og Gylfa Ægissyni.

Að sögn Rúnars Þórs hefur þríeykið þegar lokið upptökum á því lagi sem fyrst verður sett í útvarpsspilun. Hann segist ekki verða hissa ef lagið verður bannað strax. „Þetta eru kallarnir sem tóku mig undir sinn verndarvæng þegar ég kom frá Ísafirði. Fyrst þvældist ég með Gylfa Ægis, en þegar hann hætti að drekka fór ég að þvælast með Megasi.“ -



Fleiri fréttir

Sjá meira


×