Innlent

Gegn fátækt og félagslegri einangrun

Árni Páll Árnason.
Árni Páll Árnason. Mynd/Anton Brink
Evrópuár gegn fátækt og félagslegri einangrun undir yfirskriftinni „Stöðvum fátækt!" hófst formlega . Árni Páll Árnason, félags- og tryggingarmálaráðherra, segir að íslensk stjórnvöld séu að fara að ráðast í gríðarlegt átak til að rjúfa einangrun og auka virkni þeirra sem glíma við langtímaatvinnuleysi.

Evrópuárinu er ætlað að vekja athygli og leggja áherslu á baráttuna gegn fátækt og félagslegri einangrun um alla álfuna og er Ísland meðal þátttakenda. José Manuel Durao Barroso, forseti Evrópuráðsins, og José Luis Rodriguez Zapatero, forsætisráðherra Spánar, hófu átakið formlega við hátíðlega athöfn í Madrid í dag.

Sjötti hver Evrópubúi berst við að ná endum saman

„Baráttan gegn fátækt og félagslegri einangrun er mikilvægur hluti af því að komast upp úr efnahagskreppunni en það eru alltof oft hinir varnarlausu í samfélaginu sem verða verst fyrir barðinu á slíku ástandi. Með Evrópuárinu 2010 viljum við hvetja fólk til vitundar um þessi málefni og plægja akurinn fyrir sameinaðra samfélag, sem er hluti af framtíðaráætlun Evrópusambandsins 2020 sem ég hef lagt til," er haft eftir Barroso í fréttatilkynningu.

Vladimír Špidla, framkvæmdastjóri jafnra tækifæra, atvinnu- og félagsmála hjá Evrópuráðinu bætti við að sjötti hver Evrópubúi berjist daglega við að ná endum saman og að fátækt hafi áhrif á alla.



Ísland meðal þátttakenda


Ísland tekur þátt í Evrópuárinu, og er það félags- og tryggingamálaráðuneytið sem stýrir verkefninu. Átakið hefst hér á landi í febrúar. Auglýst verður í blöðum eftir verkefnum og er vonast til þess að sem flesta taki þátt, að fram kemur í tilkynningunni.

„Við þurfum að vanda mjög til verka við núverandi aðstæður, til að koma í veg fyrir fátækt og félagslega einangrun," segir Árni Páll. „Þess vegna höfum við í aðhaldsaðgerðum lagt áherslu á að skerða í engu bætur almannatrygginga hjá þeim sem hafa þær einar til framfærslu og greiðslur vegna fæðingarorlofs eru óskertar hjá lægri tekjuhópum. Við erum líka að ráðast í gríðarlegt átak til að rjúfa einangrun og auka virkni þeirra sem glíma við langtímaatvinnuleysi, á sama tíma og við eflum möguleika fólks með skerta starfsgetu til virkrar þátttöku á vinnumarkaði og í samfélaginu. Um öll þessi verkefni þarf þjóðarsamstöðu."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×