Innlent

Biðin loks á enda fyrir Apple-fíkla

Bjarni ákason
Bjarni ákason
Apple seldi 300 þúsund iPad-tölvur á laugardaginn þegar þær komu fyrst á markað.

„Ég reikna með að fyrstu iPad-tölvurnar skili sér hingað eftir páska með ferðalöngum sem hafa keypt þær úti. Við teljum okkur góð ef við fáum tölvurnar í verslunina fyrir jól,“ segir Bjarni Ákason, framkvæmdastjóri Apple-umboðsins á Íslandi.

Áhugafólk um tölvur og tækni hefur beðið með eftirvæntingu eftir iPad-tölvunni frá Apple, eða allt frá því Steve Jobs, forstjóri fyrirtækisins, kynnti hana til sögunnar seint í janúar á þessu ári. Forsala hófst um miðjan mars og bárust fimmtíu þúsund pantanir á fyrstu tveimur tímunum. Á laugardaginn seldi fyrirtækið síðan um 300 þúsund tölvur sem er svipað og sérfræðingar höfðu spáð. Toni Sacconiaghi, sérfræðingur um tækni hjá bandaríska verðbréfafyrirtækinu Sanford C. Bernsetin & Co, spáir því að Apple muni selja fimm milljónir iPad-tölva fyrsta árið.

Bjarni segir það fara eftir eftirspurninni ytra hversu lengi landinn þurfi að bíða eftir tölvunni. Verði hún umfram væntingar megi búast við að landnám hennar hér frestist frekar. Málið strandar á lyklaborði tölvunnar sem er gert hjá Apple úti. „Það er búið að gera þrjú lyklaborð, bandarískt, enskt og spænskt. Svo tínast önnur tungumál inn hægt og bítandi. Íslenska lyklaborðið er mjög aftarlega í röðinni hjá Apple,“ bendir hann á.

Bjarni segir iPad-tölvurnar verða flokkaðar með hefðbundnum tölvum. Við erlenda verðið bætist innflutningsgjald og virðisaukaskattur. Miðað við núverandi gengi Bandaríkjadals gagnvart íslensku krónunni má ætla að iPad-tölva með staðarnettengingu (Wi-Fi) muni kosta hingað komin frá um hundrað þúsund krónum til tæpra 140 þúsund. Þær sem tengst geta 3G háhraðaneti og koma á markað í enda mánaðar eru dýrari, eða frá rúmum 120 þúsundum til 160 þúsunda króna. - jab



Fleiri fréttir

Sjá meira


×