Mikið um þjófnaði og skemmdarverk í Árborg 22. mars 2010 11:41
Um helgina báru hæst verkefni sem tengdust eldgosinu á Fimmvörðuhálsi. Lögreglumenn fóru þegar í upphafi á Hvolsvöll til aðstoðar við lokanir vega og rýmingu auk þess að sjá um lokun þjóðvegarins austan við Selfoss. Þjófnaðir og eignaspjöll voru fyrirferðarmikil mál hjá lögreglunni á Selfossi í síðustu viku. Alls komu á borð 21 slíkt mál. Málin eru af ýmsum toga allt frá innbrotum í sumarbústaði, þjófnaði á ýmsum munum þó sérstaklega flatskjáum og ýmsum rafmagnstækjum. Stórir jeppahjólbarðar og fólksbílahjólbarðar á dýrum álfelgum eru hlutir sem þjófar virðast vera að sækjast eftir. Lögreglu hafa borist kærur á hendur mönnum sem grunaðir eru um að hafa tekið eða komið undan verðmætum frá mönnum sem þeir hafa talið skulda peninga svo sem vegna ógreiddra launa. Á síðustu tveimur vikum hafa um tíu menn verið handteknir og vistaðir í fangageymslum vegna rannsókna á innbrotum og þjófnuðum í Árnessýslu og á höfuðborgarsvæðinu. Tilkynnt var um tvær bílveltur um helgina. Sú fyrri var um kvöldmatarleyti á Hellisheiði þar sem ökumaður, einn í bifreiðinni, missti stjórn á bifreið sinni í krapa og hálku með þeim afleiðingum að bifreiðin fór útaf veginum og valt. Sjúkrabifreið fór á staðinn en ökumaður reyndist ómeiddur. Síðara tilvikið átti sér stað rétt eftir miðnætti á föstudag á Villingaholtsvegi við félagsheimilið Þjórsárver. Ungur ökumaður með fjóra farþega missti stjórn á bifreið sinni á skilum bundins slitlags og malarlags á veginum. Bifreiðin fór eina og hálfa veltu. Ökumaður og farþegarnir fjórir voru fluttir með sjúkrabifreið á heilsugæslustöðina á Selfossi til aðhlynningar en enginn reyndist alvarlega slasaður. Ökumaður sem lögreglumenn höfðu afskipti af vegna hraðaksturs reyndist einnig undir áfengisáhrifum. Ellefu aðrir ökumenn voru kærðir fyrir hraðakstur. Einn ökumaður var kærður fyrir að aka bifreið sviptur ökuréttindum. Lögreglumenn sinntu fjöldamörgum öðrum verkefnum eins og t.d. að taka við tilkynningu um týnda hænu í Hveragerði og geltandi hund á Selfossi.
Mest lesið Mikið eignatjón vegna bruna í efnalaug við Háaleitisbraut Innlent Umfangsmikil lögregluaðgerð víða um landið Innlent Ökumaðurinn slapp naumlega: Þrjú þúsund lítrar af olíu um borð Innlent Tugir særðir í Ísrael eftir árás Írana á spítala Erlent Gera Austurstræti og Veltusund varanlega að göngugötum Innlent Pípari sagði skólp ástæðuna fyrir kókaíninu í blóðinu Innlent Jarðskjálfti fannst á höfuðborgarsvæðinu Innlent Áframhaldandi landris í Svartsengi Innlent Vinir Gunnfaxa vonast til að bjarga Flugfélagsþristinum Innlent „Easy come, easy go“ Innlent Fleiri fréttir „Easy come, easy go“ Gera Austurstræti og Veltusund varanlega að göngugötum Umfangsmikil lögregluaðgerð víða um landið Áframhaldandi landris í Svartsengi Mikið eignatjón vegna bruna í efnalaug við Háaleitisbraut Vinir Gunnfaxa vonast til að bjarga Flugfélagsþristinum Jarðskjálfti fannst á höfuðborgarsvæðinu Ökumaðurinn slapp naumlega: Þrjú þúsund lítrar af olíu um borð Pípari sagði skólp ástæðuna fyrir kókaíninu í blóðinu Harður árekstur þegar bíl var ekið í hlið á strætisvagni Sammála Attenborough og segir tegundir þurrkaðar út Fimmtán Íslendingar vilja komast heim Þyrla Landhelgisgæslunnar aðstoðar við leitina Íslendingar sem vilja komast heim, háhyrningatorfa og blokkamyndun Ók á húsvegg Hvorki Kalli Snæ né landlæknir vilja birta bréfið Norðfjarðargöng lokuð vegna elds í bifreið Slá færri svæði í nafni sjálfbærni „Engin virðing borin fyrir því að þarna undir eru verðmæti og störf fólks“ Vesturbæjarlaug lokuð í þrjár vikur til viðbótar Bóndi spurði eftirlitsmann MAST hvort hann ætti að skjóta hann Hinsegin hátíð á Norðurlandi eystra hefst í dag Björguðu stjórnvana bát í Faxaflóa Steinþór sýknaður í Hæstarétti Ósk um að heita Óskir hafnað Einar horfir til hægri Harmar ákvörðun Guðmundar Enn þrefað á þingi og árásir ganga á víxl í miðausturlöndum Heyr, heyr-ið í þingsal veldur Snorra hugarangri Geðhjálp ekki á framfæri hins opinbera Sjá meira