Innlent

Stærsti salurinn í Hörpu bókaður fyrstu átta mánuðina

Erla Hlynsdóttir skrifar
Þórunn Sigurðardóttir segir miklar bókanir í Hörpu hafa komið sér skemmtilega á óvart
Þórunn Sigurðardóttir segir miklar bókanir í Hörpu hafa komið sér skemmtilega á óvart Mynd: Daníel

Stærsti salurinn í Tónlistar- og ráðstefnuhúsinu Hörpu er að mestu bókaður fyrstu átta mánuðina eftir að húsið verður opnað. Gert er ráð fyrir að Harpa verði tekin í notkun í byrjun maí á næsta ári og er salurinn því bókaður fram yfir jól.

Þórunn Sigurðardóttir, stjórnarformaður Ago, sem sér um rekstur og markaðssetningu Hörpu, er ánægð hversu góðar viðtökur Harpa virðist ætla að fá og segir að þær bókanir sem þegar eru komnar séu ívið fleiri en hún hafi búist við. „Þetta er mjög gott," segir hún.

Á vef Hörpu er talið niður í opnunardaginn og samkvæmt teljaranum þar eru nú 239 dagar til stefnu.

Að sögn Þórunnar verða gríðarlega fjölbreytilegir viðburðir í Hörpu fyrsta starfsárið. Tónleikar setja svip sinn á starfsemina en þar verður einnig alþjóðleg læknaráðstefna og reikna má með því að ófáir brúðkaupsgestir komi til með að gleðjast með brúðhjónum í einhverjum veislusala Hörpu að giftingarathöfn lokinni.

Þórunn bendir á að eftir að Harpa opnar verður það eini staðurinn á Íslandi þar sem hægt verður að halda mótttöku í andyrinu einu fyrir tvö þúsund manns. Öll aðstaða fyrir ráðstefnur, veisluhöld og tónleika batnar því til muna við að húsið kemst í gagnið.

Í Hörpu eru fjórir stórir salir; ráðstefnusalur, æfingasalur, tónlistarsalur og svonefndur „fjórði salurinn," en auk þeirra eru fjögur rúmgóð fundarherbergi. Þórunn segir að enn sé verið að púsla saman hvaða atburðir verða í hvaða sal en þetta skýrist allt þegar nær dregur.




Tengdar fréttir

Jómfrúarmenn með í Hörpunni

Jakob Jakobsson og maður hans, Guðmundur Guðjónsson, ásamt syni Jakobs, Jakob Einar Jakobssyni, munu reka nýjan veitingastað í tónlistar- og ráðstefnuhúsinu Hörpunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×