Lífið

Jómfrúarmenn með í Hörpunni

Jakob Jakobsson, oftast kenndur við Jómfrúnna, mun opna nýjan stað í tónlistar- og ráðstefnuhúsinu Hörpunni í samstarfi við son sinn, Jakob Einar.
Jakob Jakobsson, oftast kenndur við Jómfrúnna, mun opna nýjan stað í tónlistar- og ráðstefnuhúsinu Hörpunni í samstarfi við son sinn, Jakob Einar.

Jakob Jakobsson og maður hans, Guðmundur Guðjónsson, ásamt syni Jakobs, Jakob Einar Jakobssyni, munu reka nýjan veitingastað í tónlistar- og ráðstefnuhúsinu Hörpunni.

Jakob eldri og Guðmundur eru flestum að góðu kunnir fyrir að eiga og reka smurbrauðsveitingahúsið Jómfrúna við Lækjargötu en Jakob yngri segir aðdáendur hennar ekkert þurfa að óttast, hún verði áfram á sínum stað í þeirra höndum.

„Þetta verður algjörlega nýr veitingastaður með nýrri nálgun," segir Jakob Einar í samtali við Fréttablaðið.

Þegar fólk kemur inn í Hörpuna verður miðasala á hægri hönd en Jómfrúin á þá vinstri.

Þótt enn séu 239 dagar þar til húsið verður vígt er undirbúningur fyrir veitingasöluna kominn á fullt. Nýja veitingahúsið úr smiðju Jómfrúarmanna mun bjóða uppá norræna smárétti, kokteila, vín og bjór.

„Þetta verður kjörið fyrir fólk að koma, setjast við barinn eða fá sér eitthvað smáræði í gogginn. Þetta verður svona stemningsstaðurinn í húsinu. Þegar fólk kemur inn í Hörpuna verður miðasala á hægri hönd en við á þá vinstri."

Að sögn Jakobs Einars hélt pabbi hans að sér höndum í góðærinu þrátt fyrir mörg gylliboð um að færa út kvíarnar. „Menn héldu náttúrulega að hann væri eitthvað klikkaður þegar hann opnaði Jómfrúna á sínum tíma, að vera með veitingastað sem byði bara upp á smurbrauð," útskýrir Jakob sem bætir því hins vegar við að nýi staðurinn verði ekkert í líkingu við Jómfrúnna. Og hugsanlega verði ekki einu sinni boðið uppá smörrebröd upp á danska vísu eins og Jómfrúin er hvað þekktust fyrir.-fgg








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.