Innlent

Leggja krans á tröppur Alþingishússins

Mynd/Stefán Karlsson
Öryrkjabandalag Íslands stendur fyrir táknrænni athöfn við Alþingishúsið í dag klukkan fjögur. Þar mun Guðmundur Magnússon, formaður bandalagsins, leggja blómakrans á tröppur þinghússins. Guðmundur segir að niðurbrot velferðarkerfisins sé hafið og þá mótmælir hann þeirri áráttu stjórnvalda að byrja alltaf á lífeyrisþegum þegar að draga þurfi saman seglin.

Öryrkjabandalagið mótmælir þeim kjaraskerðingum sem felast í því að aftengja lög er tryggja hækkun lífeyris miðað við vísitölu en halda verðtryggingu lána sem hefur hækkað húsnæðiskostnað upp úr öllu valdi.

„Við teljum að með því að skerða þau réttindi sem þegar voru áunninn sé niðurbrot velferðarkerfisins hafið," segir Guðmundur.

Guðmundur segir að stjórn Öryrkjabandalagsins mótmæli breytingum á lögum sem geri Úrskurðarnefnd almannatrygginga kleift að beita aðfararhæfi gegn þeim sem Tryggingastofnun ríkisins telji sig hafa ofgreitt. Nefndin geti þannig gengið gegn eignum fólks án dómsúrskurðar. Lífeyrisþegar eru þannig orðnir annars flokks borgarar, að mati Guðmundar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×