Innlent

Sigmundur Davíð leggur til að einkavæðingin verði rannsökuð

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson vonast til þess að framtíðin verði meira rædd. Mynd/ Pjetur.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson vonast til þess að framtíðin verði meira rædd. Mynd/ Pjetur.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, ætlar að leggja fram breytingartillögu við tillögu sem þingmannanefnd Atla Gíslasonar mun leggja fram.

Breytingartillagan verður þess efnis að sérstök rannsókn fari fram á einkavæðingu bankanna. Þetta sagði Sigmundur Davíð á Alþingi eftir hádegi í dag. Sigmundur Davíð sagði að eftir þetta yrði mikilvægt að rannsóknum á fortíðinni yrði lokið og hægt yrði að tala saman um framtíðina. Hann sagði jafnframt að mikilvægt væri að einkavæðing bankanna eftir hrun yrði rannsökuð.

Eins og fram hefur komið voru þingmenn Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins í þingmannanefndinni á móti því að rannsókn á einkavæðingu bankanna færi fram. Formenn flokkanna, þeir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Bjarni Benediktsson, sögðu svo í gær að þeir væru ekki mótfallnir því að slík rannsókn færi fram.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×