Sagði Elínu ekkert þrátt fyrir tvo fundi 23. mars 2010 06:00 Sannfærður um sakleysi sitt. Haukur Þór og verjandinn Gestur Jónsson ræðast við í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær.Fréttablaðið/gva
Haukur Þór Haraldsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri rekstrarsviðs Landsbankans, sem ákærður er fyrir fjárdrátt, segir ákæruna algjörlega tilefnislausa. Þetta kom fram við aðalmeðferð í málinu í gær. Haukur er ákærður fyrir að millifæra 118 milljónir króna af reikningi félagsins NBI Holdings Ltd. 8. október 2008 inn á eigin reikning. Félagið, sem var í eigu sjálfseignarsjóðs á Guernsey og laut stjórn Hauks, hafði legið í dvala í hálfan áratug, en var áður notað af bankanum til að halda utan um eignarhluti í fjármálafyrirtækjum sem hefðu komið til frádráttar eigin fjár bankans ef þeir hefðu verið í efnahagsreikningi hans. Haukur segist hafa ætlað að bjarga fénu frá því að verða að hverri annarri kröfu í þrotabú bankans síðar meir. Einkum var tekist á um þrennt: hvort Haukur hafi haft ástæðu til að óttast um féð á reikningum vegna óvissunnar sem uppi var í hruninu um erlendar innstæður í íslenskum bönkum, hvort hann hafi gert það sem í hans valdi stóð til að upplýsa yfirboðara sína um millifærsluna og hvort hann hafi mátt vita að millifærslan myndi uppgötvast í eftirlitskerfum bankans. Ekki fékkst botn í neitt af framantöldu þrátt fyrir mikinn fjölda vitna, en þó virðist ljóst að áhyggna gætti víða um erlendu innstæðurnar og að Haukur reyndi ítrekað að ná tali af Elínu Sigfúsdóttur bankastjóra til að greina henni frá millifærslunni. Á hinn bóginn náði hann tali af henni í tvígang í einrúmi en sagði henni þá ekkert. Elín sagði við réttarhöldin mögulegt að hún hefði þá ýtt Hauki frá sér vegna anna. Þá kom fram að Haukur lét hinn stjórnarmann NBI Holdings ekki vita af millifærslunni og lét eyðileggja reikning félagsins hjá Landsbankanum að millifærslunni lokinni. Sagði hann það þó eðlilegt verklag að láta loka tómum reikningum. Gestur Jónsson, verjandi Hauks, var gagnrýninn á vinnubrögð lögreglu, og greindi meðal annars frá því að lögregla hefði aldrei haft samband við aðra stjórnarmenn NBI Holdings, né vörslumenn sjálfseignarsjóðsins sem átti félagið, til að kanna hug þeirra til millifærslunnar. stigur@frettabladid.is
Mest lesið Mikið eignatjón vegna bruna í efnalaug við Háaleitisbraut Innlent Ökumaðurinn slapp naumlega: Þrjú þúsund lítrar af olíu um borð Innlent Tugir særðir í Ísrael eftir árás Írana á spítala Erlent Jarðskjálfti fannst á höfuðborgarsvæðinu Innlent Pípari sagði skólp ástæðuna fyrir kókaíninu í blóðinu Innlent Vinir Gunnfaxa vonast til að bjarga Flugfélagsþristinum Innlent Fimmtán Íslendingar vilja komast heim Innlent Vill ekki í stríð en segir klerkastjórnina ekki mega eignast kjarnorkuvopn Erlent Áframhaldandi landris í Svartsengi Innlent Tala látinna í Kænugarði komin í tuttugu og átta Erlent Fleiri fréttir Áframhaldandi landris í Svartsengi Mikið eignatjón vegna bruna í efnalaug við Háaleitisbraut Vinir Gunnfaxa vonast til að bjarga Flugfélagsþristinum Jarðskjálfti fannst á höfuðborgarsvæðinu Ökumaðurinn slapp naumlega: Þrjú þúsund lítrar af olíu um borð Pípari sagði skólp ástæðuna fyrir kókaíninu í blóðinu Harður árekstur þegar bíl var ekið í hlið á strætisvagni Sammála Attenborough og segir tegundir þurrkaðar út Fimmtán Íslendingar vilja komast heim Þyrla Landhelgisgæslunnar aðstoðar við leitina Íslendingar sem vilja komast heim, háhyrningatorfa og blokkamyndun Ók á húsvegg Hvorki Kalli Snæ né landlæknir vilja birta bréfið Norðfjarðargöng lokuð vegna elds í bifreið Slá færri svæði í nafni sjálfbærni „Engin virðing borin fyrir því að þarna undir eru verðmæti og störf fólks“ Vesturbæjarlaug lokuð í þrjár vikur til viðbótar Bóndi spurði eftirlitsmann MAST hvort hann ætti að skjóta hann Hinsegin hátíð á Norðurlandi eystra hefst í dag Björguðu stjórnvana bát í Faxaflóa Steinþór sýknaður í Hæstarétti Ósk um að heita Óskir hafnað Einar horfir til hægri Harmar ákvörðun Guðmundar Enn þrefað á þingi og árásir ganga á víxl í miðausturlöndum Heyr, heyr-ið í þingsal veldur Snorra hugarangri Geðhjálp ekki á framfæri hins opinbera Tók sjúkrabíla þrjú korter að mæta á vettvang banaslyss Ný könnun Gallup: Samfylkingin bætir við sig og Framsókn þurrkast út Leituðu Sigríðar í Elliðaárdal Sjá meira