Minnihluti vill slaka á umhverfiskröfum 23. mars 2010 06:30
Meirihluti þeirra sem afstöðu tóku í skoðanakönnun Fréttablaðsins er andsnúinn því að slaka á kröfum um umhverfisvernd til að greiða fyrir nýjum stóriðjuframkvæmdum. Alls sögðust 57,7 prósent þeirra sem afstöðu tóku andsnúin slíkum tilslökunum, en 42,3 prósent voru þeim fylgjandi. Könnunin var gerð síðastliðið fimmtudagskvöld. Umtalsverður munur er á afstöðu kynjanna til spurningarinnar. Helmingur þeirra karla sem afstöðu tóku vildi slaka á kröfum. Mun færri konur voru þeirrar skoðunar, um 34 prósent þeirra sem afstöðu tóku. Mikill munur var á afstöðu þeirra sem þátt tóku í könnuninni eftir því hvaða flokk viðkomandi sögðust myndu kjósa ef gengið yrði til þingkosninga nú. Tveir af hverjum þremur sem sögðust myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn eða Framsóknarflokkinn yrði gengið til þingkosninga nú, 67 prósent þeirra sem afstöðu tóku, vildu slaka á kröfum um umhverfisvernd til að greiða fyrir nýjum stórframkvæmdum. Alls 62 prósent stuðningsmanna Framsóknarflokksins og 69 prósent þeirra sem sögðust myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn vildu slaka á kröfum um umhverfisvernd. Afstaða stuðningsmanna stjórnarflokkanna var á annan veg. Einn afhverjum fimm, um 21 prósent þeirra sem afstöðu tóku, sögðust styðja tilslakanir en fjórir af fimm, rúm 79 prósent, voru þeim andsnúnir. Aðeins 12 prósent stuðningsmanna Vinstri grænna voru fylgjandi tilslökunum, en 29 prósent stuðningsmanna Samfylkingarinnar. Tæplega 40 prósent þeirra sem þátt tóku í könnun Fréttablaðsins vildu ekki gefa upp stuðning við stjórnmálaflokk, voru ýmist óákveðin, vildu ekki svara eða sögðust myndu skila auðu eða ekki kjósa yrði gengið til þingkosninga nú. Ríflega 38 prósent þessa hóps sögðust fylgjandi því að slaka á kröfum um umhverfisvernd, en tæplega 62 prósent voru því andvíg. Ekki reyndist tölfræðilega marktækt að reikna afstöðu stuðningsmanna smærri framboða. Hringt var í 800 manns fimmtudaginn 18. mars. Þátttakendur voru valdir með slembiúrtaki úr þjóðskrá. Svarendur skiptust jafnt eftir kyni, og hlutfallslega eftir búsetu og aldri. Spurt var: Telur þú að slaka eigi á kröfum um umhverfisvernd til að greiða fyrir nýjum stóriðjuframkvæmdum? Alls tóku 86,3 prósent aðspurðra afstöðu til spurningarinnar.brjann@frettabladid.is
Mest lesið Íslenskur morðingi í Bandaríkjunum: „Gerðu það pabbi, ekki gleyma mér“ Innlent Icelandair hættir rekstri stærstu flugvéla sinna Innlent Vilja leggja réttarríkið til hliðar Erlent Handtekinn fyrir að vara við gyðingahatri á samfélagsmiðlum Erlent Sker upp herör gegn kínverskum netrisum Innlent Tók málin í eigin hendur og opnar dagforeldravef Innlent Fundu mögulega eitt af 67 fórnarlömbum hálfri öld síðar Erlent Pirraður yfir því hvað friður er langt utan seilingar Erlent Lalli Johns er látinn Innlent Hópsmit á Mánagarði ein „alvarlegasta uppákoma af þessu tagi“ Innlent Fleiri fréttir Íslendingar handteknir á Spáni með mikið magn fíkniefna Lalli Johns er látinn Afnám virðisaukaskatts geti skilað björgunarsveitum fúlgum fjár Ein staða fornleifafræðings eftir á Þjóðminjasafninu Sker upp herör gegn kínverskum netrisum Aðgerðir gegn Temu og Shein, hraðbanki í hættu og þreyttir hlaupagarpar í beinni „Eiga sína síðustu daga í faðmi ástvina undir hamraslætti og múrborum“ Mótorhjólasamtök aðstoða börn sem hafa orðið fyrir ofbeldi Hækka þurfi veiðigjald í skrefum 230 íbúðir í byggingu í Þorlákshöfn Vopnahlé og í beinni frá Basel og Öskjuhlíð Björgunarsveitir vilja undanþágu frá virðisaukaskatti Gasa, veiðigjöld, gagnaleki og kolefni í Sprengisandi Starfsmaður verslunar sleginn Einn fluttur á sjúkrahús vegna reykeitrunar „Vandræðalegt“ að stjórnin hafi ekki mannað eigin þingfund Icelandair hættir rekstri stærstu flugvéla sinna Veittu eftirför í Árbæ Nýtt íslenskt hundaleikfang slær í gegn „Hreint og tært málþóf í sinni skýrustu mynd“ Veiðigjöld, vopnahlé og veðurblíða í bakgarðshlaupi Lengstu fyrstu umræðu í sögu Alþingis lokið Fundu, lögðu hald á og drápu snáka Efnahags- og viðskiptanefnd taki fyrir „tvöföldun á skatti“ Samningurinn nauðsynlegur og ekkert athugavert við hann Samningur saksóknara, þras á Alþingi og bakgarðshlaup í blíðunni Lögreglan á Suðurlandi rannsakar gagnastuldinn Tók málin í eigin hendur og opnar dagforeldravef Skjálfti upp á 3,1 við Herðubreið Sérstakur saksóknari gerði samning við PPP Sjá meira