Innlent

Ríkisstjórnin dragi skötuselslögin til baka

Stöðugleikasáttmálanum verður ekki bjargað nema ríkisstjórnin dragi skötuselslögin til baka að sögn framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins. Forsætisráðherra segir að útgerðarmenn verði að fara átta sig á því að þeir stjórna ekki landinu. Til harðra átaka gæti komið á vinnumarkaði næsta haust þegar kjarasamningar verða lausir.

Samtök atvinnulífsins telja sig ekki lengur vera bundin stöðugleikasáttmálanum eftir að skötuselsfrumvarp sjávarútvegsráðherra var samþykkt á Alþingi í gær. Samtökin telja að ríkisstjórnin hafi rofið alla sátt í málinu og var bréf þessa efnis sent forsætisráðherra í gær.

„Þetta er algerlega óskiljanleg ákvörðun að þeir skuli segja sig frá samstarfi við stjórnvöld og segja sig frá samstarfi um breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu af ekki meira tilefni en þetta," segir Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra.

Jóhanna segir að með þessu séu Samtök atvinnulífsins að setja hagsmuni þröngs hóps útgerðarmanna ofar hagsmunum þjóðarinnar.

„Aðilar LÍÚ verða að fara átta sig á að þeir stjórna ekki þessu landi. Þeir stjórna ekki ákvörðunum. Það er stærsta hagsmunamál þjóðarinnar að verði farið út í breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu," segir Jóhanna.

Samtök atvinnulífsins vísa þessu á bug og segja að skötuselslögin hafi verið kornið sem fyllti mælinn. Ríkisstjórnin hafi einfaldlega ekki náð að standa við sinn hluta stöðugleikasáttmálans nema að litlu leyti. Samtökin séu þó reiðubúin að endurskoða afstöðu sína ef lögin verða dregin til baka.

„Ég mundi segja það að þá þyrftum við að taka málið upp aftur hérna innandyra," segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA.

Án stöðugleikasáttmálans gæti komið til harðra átaka á vinnumarkaði þegar kjarasamningar verða lausir í haust.

„Við vonum að það takist að klára þau mál án átaka það er okkar vilji. Ég vona að það takist í samskiptum við ríkisstjórnina en það verður ekki á grundvelli þess trausts sem var hér áður en að okkur var vísað út úr stöðugleikasáttmálanum," segir Vilhjálmur.




Tengdar fréttir

Skötuselsfrumvarpið kornið sem fyllti mælinn

Vilhjálmur Egilsson, formaður Samtaka atvinnulífsins (SA) segir að samþykkt skötuselsfrumvarpsins á Alþingi í gær hafi verið kornið sem fyllti mælinn, því hafi samtökin sagt sig frá stöðugleikasáttmálanum. Ríkisstjórnin sendi sjálf frá sér yfirlýsingu í dag þar sem áréttað var að ekkert kæmi fram í sáttmálanum er varðar skötuselsfrumvarpið. Þá sagðist ríkisstjórnin ekki sammála því að stöðugleiksáttmálinn væri brostinn. Því hygðist hún vinna áfram í anda sáttámálans.

Jóhanna: Algjörlega óskiljanleg ákvörðun hjá SA

Forsætisráðherra ætlar að hitta forystu Samtaka atvinnulífsins (SA) klukkan eitt í dag. Þetta kom fram eftir ríkisstjórnarfund í morgun. Þar lýsti Jóhanna yfir vonbrigðum með þá ákvörðun SA að segja upp stöðugleikasáttmálanum vegna skötuselsmálsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×