Vilja breytt lög um þjóðlendur 15. febrúar 2010 06:15 Landssamtök landeigenda á Íslandi skora á yfirvöld að breyta lögum um þjóðlendur. fréttablaðið/anton
Landssamtök landeigenda á Íslandi skora á Alþingi og ríkisstjórn að breyta lögum um þjóðlendur þannig að þar verði sett inn ótímabundið heimildarákvæði um endurupptöku mála komi fram ný sönnunargögn í þjóðlendumálum sem lokið er með dómum. Þetta var samþykkt samhljóða á aðalfundi samtakanna í Reykjavík. Vísað er til þess að um sextán þúsund skjöl liggi órannsökuð í Árnastofnun og á Landsbókasafni og þar kunni að vera sönnunargögn um eignarhald á landi sem dæmt hafi verið þjóðlenda. „Þarna er gríðarlegt magn af órannsökuðum skjölum sem geta haft réttaráhrif á mál sem eru búin að fara í gegnum þetta ferli,“ segir Örn Bergsson, formaður Landssamtaka landeigenda. Fram kom í skýrslu stjórnar á aðalfundinum að Óbyggðanefnd hefði eingöngu leitað til Þjóðskjalasafnsins eftir gögnum í þjóðlendumálum, aldrei til Árnastofnunar. Örn segir það ekki boðlegt að hafa það tilviljunum háð hvort fólk héldi helgum rétti sínum, eignarréttinum. Þess vegna krefðust samtökin þess að öll skjöl væru tiltæk og aðgengileg lögmönnum landeigenda. „Það þarf að endurskoða framkvæmd þjóðlendulaganna í heild sinni. Lögfræðin hefur leitt þetta mál í ógöngur og við munum aldrei viðurkenna að dómur Hæstaréttar sé réttur í þessu máli þar sem Hæstiréttur leggur á okkur að við berum alfarið sönnunarbyrðina fyrir eignarrétti okkar jarða.“ - fb
Mest lesið Orð Kristrúnar vöktu „gott bros“ Bandaríkjaforseta Innlent Bassi Maraj sakfelldur fyrir líkamsárás Innlent „Þetta er svona hús sem er alltaf verið að flytja í og úr“ Innlent Senda þjóðinni „skýr skilaboð“ á óróatímum Innlent Var ekki með réttindi til að aka hjólinu sem átti ekki að vera í umferð Innlent Kristrún missti af fundi með Selenskí Erlent Bíll valt í Kópavogi Innlent Tók í spaðann á Trump: „Hann er nú heillandi, karlinn“ Erlent Vilja ábendingar um „kettlingamyllur“ og síendurtekin got Innlent Flagga íslenska þjóðfánanum í ólöglegri göngu Innlent Fleiri fréttir Þorgerður niðurlægi konur með því að kalla Trump heillandi „Menn eru alla vega að vinna með sömu tölu“ Sögulegur NATO-fundur, umræðumet í uppsiglingu og afmæli í Heiðmörk „Þetta er svona hús sem er alltaf verið að flytja í og úr“ Bíll valt í Kópavogi Líkir veiðigjaldaáformum við sóvéska eignaupptöku Komu sextán dvalarleyfishöfum af Gasasvæðinu Heiðrún Lind fóðri málflutning með alvarlegum rangfærslum Sameiningarhugur á Vestfjörðum Rannsókn á andláti í Garðabæ lokið Orð Kristrúnar vöktu „gott bros“ Bandaríkjaforseta Gæsluvarðhald aftur framlengt um fjórar vikur Var ekki með réttindi til að aka hjólinu sem átti ekki að vera í umferð Bassi Maraj sakfelldur fyrir líkamsárás Lokanir á brúnni yfir Jökulsá í kvöld Rangstæð valkyrja sem skilji ekki frumvarpið Flagga íslenska þjóðfánanum í ólöglegri göngu Læknasamningur gæti orðið hvati að oflækningum Sjúkratryggingar fagna skýrslu Ríkisendurskoðunar Sjúkratryggingar réðu illa við læknana í Reykjavík Benedikt nýr skólameistari VMA Meirihluti vill stöðva málþóf á Alþingi Vilja ábendingar um „kettlingamyllur“ og síendurtekin got Verður nýr skólameistari á Húsavík Senda þjóðinni „skýr skilaboð“ á óróatímum Skildi ekki hvers vegna kennarinn var ekki rekinn Ræddu veiðigjöldin til að ganga hálf fjögur Slagsmál á hóteli í miðborginni Margir í vandræðum vegna of skyggðra rúðna Tillögur um skattalækkanir felldar: Segir ótrúlegt að hlusta á rök „Skattfylkingarinnar“ Sjá meira