Kærir líflátshótun á Facebook til lögreglunnar 3. febrúar 2010 10:18 Ragnheiður Elín Clausen.
Neminn og fyrrum sjónvarpsþulan, Ragnheiður Elín Clausen, var hótað lífláti í gærkvöldi á vefsíðu sem hún heldur úti á samskiptavefnum Facebook. Þar skrifaði hún svo seint í gærkvöldi: „Það er virkilega maður hér að senda mér prívat skilaboð og hóta því að drepa mig...á ég að hlæja?" Viðbrögð vina Ragnheiðar létu ekki á sér standa, þeir tóku skilaboðin alvarlega og hvöttu hana til þess að kæra málið til lögreglunnar. Samkvæmt áreiðanlegum heimildum Vísis þá hefur Ragnheiður tilkynnt hótunina til lögreglunnar sem hefur tekið málið til skoðunar, en líflátshótunin kemur frá nafngreindum einstaklingi en ekki gervisíðu. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Ragnheiður lendir í vandræðum á Facebook, aðgangi hennar var lokað af Facebook-yfirvöldum á síðasta ári án þess að hún fengi tilhlýðilegar útskýringar á því. Það mál var hinsvegar farsællega leyst að lokum. Þá vekur athygli að Fréttablaðið sagði frá því í júlí á síðasta ári að rithöfundinum Vigdísi Grímsdóttur hefði einnig verið hótað á samskiptavefnum. Vigdís vildi ekki gefa upp hverskyns hótanir hefði verið um að ræða. Það varð þó til þess að hún hætti að nota samskiptavefinn tímabundið. Facebook hefur aldeilis slegið gegn hér á landi en um 60 þúsund Íslendingar nýta vefinn dag hvern. Flestir nýta hann þó í jákvæðari tilgangi. Þegar haft var samband við Ragnheiði þá vildi hún ekki tjá sig efnislega um málið.
Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Innlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Berserksgangur á gististað Innlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Innlent Fleiri fréttir Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Sjá meira