Innlent

Hreyfing og GSÍ í samstarf

Stefán Garðarsson, frá GSÍ, og Ágústa Johnson, framkvæmdastjóri Hreyfingar.mynd/gsí
Stefán Garðarsson, frá GSÍ, og Ágústa Johnson, framkvæmdastjóri Hreyfingar.mynd/gsí

Golfsamband Íslands og Hreyfing heilsulind hafa gert með sér samstarfssamning með það að markmiði að fjölga kylfingum sem stunda reglulega líkamsrækt.

Afrekshópar GSÍ munu njóta góðs af samningnum, hluti af æfingum hópanna mun fara fram í Hreyfingu. Íslenskir afrekskylfingar hafa fyrir löngu áttað sig á samhengi árangurs og góðs líkamlegs ástands. Framför íslenskra kylfinga gerir það að verkum að kylfingar þurfa að leggja meira og meira á sig til að ná að halda sér meðal þeirra bestu. - shá




Fleiri fréttir

Sjá meira


×