Innlent

Yoko Ono heldur friðarsýningu í London

SB skrifar
Gamla skiltið verður nú aftur til sýnis í London í september.
Gamla skiltið verður nú aftur til sýnis í London í september.

Verk eftir listakonuna Yoko Ono verða til sýnis í London. Verkin heita Imagine Peace og War is over - eða ímyndaðu þér frið og stríðið er afstaðið - og verða til sýnis á tveim stórum skiltum í miðborg Lundúna.

Þessi tvö verk eru reyndar ekki ný af nálinu. Árið 1969 hófu John Lennon og Yoko Ono friðarherferð þar sem slagorð á borð við „War is over! If You Want It" og „Happy Christmas from John and Yoko" - mátti sjá á plakötum og auglýsingaskiltum víðsvegar um heiminn.

Verkið Imagine Peace er frá árinu 2007 og var friðarsúlan í Viðey hluti af því verki. Friðarsúlan var afhjúpuð á 67 ára afmæli John Lennon og eru orðin Imagine Peace - eða ímyndið ykkur frið - grafin á 24 tungumálum í súluna.

Listahátíðin í London heitir London Ontario Live Arts og hefst um miðjan September. Það þykir mikill heiður fyrir skipuleggjendur hátíðarinnar að fá Yoko Ono til liðs við sig.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×