Sakar yfirvöld í S-Afríku um þjóðarmorð 25. ágúst 2010 07:09 Jacob Zuma, forseti Suður-Afríku. Talsmaður stjórnvalda vísar ásökunum á bug og segir þær fáránlegar.
Suður-afrískur maður sakar þarlend stjórnvöld um þjóðarmorð í erindi sem hann hefur sent Sameinuðu þjóðunum. Hann segir 40 þúsund hvíta bændur hafa verið myrta í landinu á undanförnum árum. Maðurinn segir Afríska þjóðarráðið, sem gnæft hefur yfir suður-afrísk stjórnmál undanfarin 20 ár, bera óbeint ábyrgð á morðunum og öðru ofbeldi sem hvítir bændur hafa sætt. Hann fullyrðir að hátt í 40 þúsund hvítir bændur hafi verið myrtir frá því að aðskilnaðarstefnan leið undir lok. Lögmaður mannsins vill að Sameinuðu þjóðirnar rannsaki málið en talsmaður ríkisstjórnar Suður-Afríku vísar ásökunum á bug og segir þær fáránlegar. Miðað við önnur lönd er glæpatíðni einna hæst í Suður-Afríku þar sem morð, nauðganir og aðrir ofbeldisglæpir eru afar algeng. Rúmlega 50 milljónir manna búa í landinu. Samkvæmt opinberum tölum hafa að minnsta kosti þrjú þúsund bændur sem tilheyrðu hvíta minnihlutanum verið myrtir frá lokum aðskilnaðarstefnunnar. Ólíklegt er talið að fjallað verði um erindi mannsins á vettvangi Sameinuðu þjóðanna en ljóst þykir að það mun vekja athygli á vaxandi óánægju hvítra íbúa landsins vegna aukins ofbeldis sem hvítir bændur hafa verið beittir á undanförnum árum.
Mest lesið Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Innlent Ming Ting dæmd í tólf ára fangelsi Innlent Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar Innlent Áhyggjur uppi vegna nýrrar brúar milli Rússlands og Norður-Kóreu Erlent Fluttur með þyrlunni eftir vinnuslys Innlent Ætlar að áfrýja dómnum Innlent Vilja fá ókeypis aðgang að gommu af höfundarvörðu efni Innlent „Við munum ná markmiðum okkar“ Erlent Stórslysaleg fyrsta upplifun af landinu Innlent Hátt í þúsund atkvæði komin: Margfalt fleiri mættu á fyrsta degi Innlent Fleiri fréttir Ræddu Patriot-flaugar og friðarviðræður Vill að RFK gangi harðar fram gegn bólusetningum Fólk fast í verslunarmiðstöð eftir skjálftann í Japan „Við munum ná markmiðum okkar“ Vilja að Hæstiréttur taki afstöðu Stukku fram af Geimnálinni Johnson & Johnson greiðir 693 milljarða króna vegna málsókna Bandarískir hermenn ekki látnir svara til saka á Bretlandseyjum Skjálfti að stærð 7,1 skók Japan Áhyggjur uppi vegna nýrrar brúar milli Rússlands og Norður-Kóreu Árásirnar haldi áfram skili viðræðurnar ekki sínu Önnur hitabylgja nálgast Spán Kveiktu í tveimur moskum Handtekinn við Kastrup eftir að tilkynnt var um meinta skammbyssu Fölsk játning í formi lags Drífa segir nálgunarbann vannýtt úrræði Skutu niður meinta rússneska dróna í lofthelgi ESB í þriðja sinn Engar íranskar árásir gerðar á meðan sprengjuhlé Bandaríkjanna varir Þrír látnir eftir skothríð á matarhátíð í Seattle Netayahu sakar Mamdani um að „sá hatri“ Á fjórða hundrað þúsund hafa flúið heimili sín vegna gróðurelda „Uppáhaldið“ hans Epsteins mun erfa veldið Grunaður árásarmaður skotinn til bana í Berlín Fer enn huldu höfði Áhrifavaldur drepin eftir hún minntist á ásakanir í garð eiginmannsins Grunuðum ISIS-liða sleppt úr fangelsi í maí Ráðgjafar áhyggjufullir og Trump gerði hlé á árásum Lýsa eftir þekktum öfgamanni Modi féllst á kröfur „Kakkalakkanna“ Minnst einn látinn á Pride-hátíð í Berlín Sjá meira